Auka umferðaröryggi í gegnum Borgarnes

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Nú er unnið að lagfæringum á göngustígum og gatnamótum á þremur stöðum á hringveginum í gegnum Borgarnes. Þar er eins og allir þekkja mikil og þung umferð bíla allt árið og því brýnt að bæta merkingar, mannvirki og lýsingu eins og kostur er. Undir lok vikunnar var verið að endurhlaða hraðahindrun á móts við leikskólann Klettaborg. Umferð var á meðan stýrt með ljósum um þá akrein sem ekki var unnið við. Á þessum stað verða jafnframt sett upp gönguljós og því þurfti að leggja nýjar lagnir. Hleðslusteinninn sem lagður var er 8 cm þykkur og við kantana var steypt til að verja steininn álagi. Næsti verkþáttur verða framkvæmdir á móts við aðkeyrsluna þar sem beygt er upp í Stöðulsholt, Kvíaholt, Húsamiðjuna og KB. Þar verður sett upp ný afrein og er byrjað að grafa fyrir henni. Verktaki í þessum framkvæmdum er Borgarverk en Garðaþjónustan Sigur-garðar sér um hleðslustein og frágang.\r\n\r\nMeðfylgjandi mynd var tekin í ljósaskiptunum á fimmtudaginn þegar keppst var við að hlaða göngustíg sem jafnframt er hraðahindrun á móts við Klettaborg.",
  "innerBlocks": []
}
Auka umferðaröryggi í gegnum Borgarnes - Skessuhorn