
Úr Stykkishólmi. Ljósm. af vef bæjarfélagsins.
Jólaljósin tendruð við lágstemmda athöfn í Stykkishólmi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Næstkomandi miðvikudag, 1. desember, verða ljós tendruð á jólatrénu í Hólmgarði í Stykkishólmi. Í ljósi aukinna smita í samfélaginu verður viðburðurinn með svipuðu sniði og í fyrra. Grunnskólabörn í 1.-4. bekk munu eiga samverustund í Hólmgarði að morgni dags þegar 1. bekkur tendrar ljósin.\r\n\r\nÁ síðasta ári varð í fyrsta sinn breyting á þeirri gömlu hefð að þiggja grenitré að gjöf frá Drammen, vinabæ Stykkishólms í Noregi. Stykkishólmur hafði þann sið frá árinu 1984 en í samræmi við sjálfbærnistefnu Snæfellsness og með vaxandi umhverfisvitund og umræðu um loftslagsmál var tekin ákvörðun um að sækja ekki vatnið yfir lækinn og nýta þau tré sem vaxa í nágrenni bæjarins í stað þess að þiggja fleiri tré frá Noregi.\r\n\r\nLíkt og í fyrra hafa nú, í samvinnu við Skógræktarfélag Stykkishólms, tvö tré í Sauraskógi verið valin sem koma til greina sem jólatré Hólmara í ár og bauðst íbúum að velja hvort tréð yrði sett upp í Hólmgarðinum sem jólatréð í ár.",
"innerBlocks": []
}