Magnús Davíð Norðdahl. Ljósm. arg.

Fer með kosningamálið í NV til Strassburgar

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Magnús D Norðdahl lögfræðingur og oddviti Pírata í NV kjördæmi fyrir kosningarnar í haust, hefur ákveðið að fara með kosningamálið í Norðvesturkjördæmi til Mannréttindadómstóls Evrópu í Strassburg. „Uppspretta valdsins í okkar samfélagi er í þingkosningum. Löggjafarvaldið velur hverjir fara með framkvæmdarvald sem síðan skipar þá sem fara með dómsvald. Heilindi kerfisins í heild eru því undir í þessu mikilvæga máli,“ skrifar Magnús í yfirlýsingu.\r\n\r\n„Ég lagði fram kæru til Alþingis þann 1. október síðastliðinn og krafðist ógildingar kosninganna í Norðvesturkjördæmi. Allar málsástæður kærunnar, hver um sig og eins allar saman, fólu í sér ógildingarannmarka sem voru til þess fallnir að draga úr trúverðugleika talningarinnar, sama hvort litið var til þeirrar fyrri eða síðari, lögbrota og starfa yfirkjörstjórnar í heild og þar með trúverðugleika kosninganna sem fram fóru í kjördæminu. Ógilding kosninganna blasir við sama hvort beitt er almennum eða sértækum mælikvarða. Þeir 42 þingmenn, sem lögðu blessun sína yfir kosningarnar í Norðvesturkjördæmi, þurfa að íhuga stöðu sína og framtíð í stjórnmálum fari svo að mál þetta vinnist fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. Enginn ætti að taka lýðræðinu sem gefnum hlut, sérstaklega þegar kjörnum fulltrúum er falið að úrskurða um gildi kosninga þar sem þeir sjálfir náðu kjöri. Ég trúi því að réttlætið muni sigra í þessu máli þó síðar verði,“ skrifar Magnús D Norðdahl.",
  "innerBlocks": []
}
Fer með kosningamálið í NV til Strassburgar - Skessuhorn