Svipmynd frá Hellnum á Snæfellsnesi.

Aukin áhersla á skólamál í sameiningarferli tveggja sveitarfélaga

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Samstarfsnefnd um sameiningu Eyja- og Miklaholtshrepps og Snæfellsbæjar hefur skilað áliti sínu til sveitarstjórnanna og munu þær koma saman í þessari viku og taka til fyrri umræðu. Í tilkynningu frá nefndinni kemur fram að brugðist hafi verið við þeim 56 ábendingum sem bárust í kjölfar samráðsfundar sem fram fór á Breiðabliki 16. nóvember sl.\r\n\r\n„Flestar ábendinganna lýsa þeim sjónarmiðum að sameining þessara tveggja sveitarfélaga væri heillavænlegt skref, ekki síst í þeim tilgangi að vinna hratt og örugglega að eflingu skólastarfs. Tekur nefndin heilshugar undir þau sjónarmið. Skólamálin eru íbúum greinilega ofarlega í huga, en 21 ábending eða spurning varðaði skólamál. Með vísan til ábendinganna hefur nefndin skerpt á áherslum sínum og leggur til að ef sameining verður samþykkt í febrúar þá verði strax hafist handa við mótun framtíðarsýnar í skólamálum í samráði við skólasamfélagið,“ segir í tilkynningu frá nefndinni. „Íbúar eru hvattir til þess til að kynna sér málin með því að fara inn á snaefellingar.is. Þar er hægt að nálgast upptöku frá samráðsfundi ásamt kynningarglærum og öllum þeim ábendingum sem bárust. Enn er hægt að senda fyrirspurnir og ábendingar til nefndarinnar í gegnum vefinn og finna svör við öllum þeim spurningum sem hafa borist.“",
  "innerBlocks": []
}
Aukin áhersla á skólamál í sameiningarferli tveggja sveitarfélaga - Skessuhorn