Smit skjóta upp kollinum í skólum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á liðnum dögum hafa kóvidsmit verið að greinast í grunnskólum í landshlutanum.\r\n\r\nÁ föstudaginn var nemandi í 5. bekk Grunnskóla Snæfellssbæjar (norðan heiðar) greindur smitaður og í kjölfar smitrakningar voru fjórir nemendur og tveir starfsmenn sendir í sóttkví og fara í PCR próf í dag. Er niðurstöðu úr því að vænta í kvöld. Nemendur í þessum árgangi verða heima í dag.\r\n\r\nÞá var nemandi í 3. bekk í Brekkubæjarskóla á Akranesi greindur með smit í gær, sunnudag. Því hefur smitrakningarteymi ákveðið að allir nemendur í 3. BS og árgangateymið þurfi að fara í sóttkví.\r\n\r\nSamkvæmt Covid.is eru nú 98 í einangrun á Vesturlandi og 198 í sóttkví. Þær tölur eru venjulega uppfærðar um klukkan 13 og því má gera ráð fyrir breytingu eftir hádegið þegar uppfærðar tölur eftir helgina bætast við.",
  "innerBlocks": []
}
Smit skjóta upp kollinum í skólum - Skessuhorn