
Fiskeldiskví í Reyðarfirði. Ljósm. Laxar fiskeldi.
Landssamband veiðifélaga óttast áhrif ISA veirusýkingar í laxi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "ISA-veiran, sem veldur sjúkdómnum blóðþorra í laxi, hefur greinst í sjókví hjá Löxum fiskeldi í Reyðarfirði. Um er að ræða skæðasta og hættulegasta veirusjúkdóm sem þekkist í laxeldi og er þetta í fyrsta skipti sem sjúkdómurinn kemur upp hér á landi. Ljóst er að afleiðingarnar fyrir íslenska náttúru og sjókvíaeldi hér á landi geta orðið gríðarleg. Í síðustu viku var brugðist við með að slátra öllum laxi í viðkomandi sjókvíum.\r\n\r\nISA-veiran getur borist langa leið með hafstraumum og setur aðra fiskistofna í verulega hættu sem og laxfiska í sjókvíum hér við land. Ekki er ljóst hvernig veiran barst í kví Laxa fiskeldis í Reyðarfirði, hefur í raun til þess ótal leiðir. Landssamband veiðifélaga hefur ítrekað gert athugasemdir við að erlendir brunnbátar séu notaðir hér við land enda ljóst að sótthreinsun á heilum skipum er vandasamt verkefni. Í tilkynningu frá landssambandinu segir: „Veiran er þess eðlis að slátra þarf öllum sýktum fiski og farga á þann hátt að tryggt sé að veiran berist ekki áfram. Sjúkdómurinn blóðþorri hefur haft gríðarleg áhrif í þeim löndum sem hann hefur komið upp, t.d. Noregi, Færeyjum og Chile, enda geta afföll af hans völdum numið meira en 90%. Landssamband veiðifélaga hefur verulegar áhyggjur af þessum fréttum og telur mikilvægara nú en nokkru sinni að vinnubrögð við slátrun og förgun á hinum sýkta laxi verði vönduð og undir ströngu eftirliti. Sambandið telur einnig að slátra eigi öllum laxi í kvíum í Reyðarfirði vegna hættu á smitum og afturkalla rekstrarleyfi í firðinum þar til tryggt er að komist hafi verið fyrir sýkinguna.“",
"innerBlocks": []
}