{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Út er komin ríkulega myndskreytt bók um Pál Guðmundsson listamann á Húsafelli. Nefnist hún Af nótnaborði náttúrunnar. Höfundur texta er Sigmundur Ernir Rúnarsson en ljósmyndir tók aldavinur Páls; Friðþjófur Helgason ljósmyndari frá Akranesi.\r\n\r\nÍ bókarkynningu segir höfundur: „Það er eins og úrið hægi á sér þegar Páll á Húsafelli er sóttur heim, enda er tíminn í hans húsakynnum ekki af klukkuverki þessa heims. Ljúfmennskan ræður þar mestu, í bland við háttvísi og æðruleysi, en samfundir með listamanninum eru þeirrar náttúru að allt um hægist – og gesturinn finnur það á eigin skinni að eitthvað hefur gerst sem glæðir skilningarvitin og skerpir sköpunarþrána. Og hann gengur aldrei samur maður á veg, heldur rórri í sálinni, ríkari af friði, enda áminntur um að náttúran er hans og hann er náttúran.“\r\n\r\nÚtgefandi er Skrudda, bókin er 160 síður í liggjandi broti og er gefin út á íslensku og ensku.",
"innerBlocks": []
}