Biskup Íslands, Agnes Sigurðardóttir, afhjúpaði skiltið í Saurbæ. Ljósm. vaks

Söguskilti afhjúpað við Miðgarð í Hvalfjarðarsveit

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Halldór Blöndal fyrrverandi alþingismaður og ráðherra mun afhjúpa söguskilti við félagsheimilið Miðgarð, laugardaginn 27. nóvember næstkomandi kl. 12:00. Á skiltinu er farið yfir sögu Jóns Hreggviðssonar, Péturs Ottesen, Ytra-Hólms og Innri-Hólms ásamt Innri-Hólmskirkju.\r\n\r\nÁ vef Hvalfjarðarsveitar segir að þetta sé annað skiltið sem er afhjúpað er í verkefninu Merking sögu og merkisstaða í Hvalfjarðarsveit. Það fyrsta var afhjúpað við Hallgrímskirkju í Saurbæ 27. október síðastliðinn þar sem farið er yfir sögu Hallgrímskirkju, Hallríms Péturssonar og Guðríðar Símonardóttur. Verkefnið er unnið í samstarfi við Markaðsstofu Vesturlands og byggir á samstarfi þriggja sveitarfélaga við Hvalfjörð sem eru Kjósarhreppur, Hvalfjarðarsveit og Akranes og gengur út á þróun ferðaleiða um Hvalfjörð.\r\n\r\nJólamarkaður sóknarnefndar Innri-Hólmskirkju til styrktar kirkjunni fer fram í Miðgarði þessa helgi og er opinn frá kl. 13:00 - 17:00 báða dagana. Þangað eru allir velkomnir.",
  "innerBlocks": []
}
Söguskilti afhjúpað við Miðgarð í Hvalfjarðarsveit - Skessuhorn