Valgerður Janusdóttir, Ragnar B Sæmundsson, Alfreð Þór Alfreðsson, Guðmundur Sigvaldason, Jóhannes Guðbjörnsson, Sævar F. Þráinsson og Eyjólfur Fannar Eyjólfsson.

Verksamningur um innanhússfrágang Garðasels

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í dag var undirritaður verksamningur á milli Akraneskaupstaðar og E. Sigurðssonar um innanhúss frágang leikskólans Garðasels við Asparskóga á Akranesi en fyrirtækið sá einmitt um innanhússfrágang á jarðhæð Dalbrautar 4 þar sem skrifstofur Akraneskaupstaðar hafa aðsetur. Alls bárust fimm tilboð í verkið.\r\n\r\nGuðmundur Sigvaldason er framkvæmdastjóri Orkuvirkis sem sér um verkeftirlit ásamt Alfreð Þór Alfreðssyni, rekstrarstjóra áhaldahúss Akraneskaupstaðar. Að sögn Guðmundar skilaði E. Sigurðsson afar vönduðu verki við áðurnefnt verk á Dalbraut 4 auk þess sem fyrirtækið var lægstbjóðandi í innanhússfráganginn í Garðaseli. Því hafi verið ákveðið að semja við fyrirtækið.\r\n\r\nVerkið var boðið út af Batteríinu arkitektum ehf fyrir hönd Akraneskaupstaðar og voru útboðsgögnin afhent á stafrænu formi frá 16. ágúst og var tilboðsfrestur  til 8. október. E. Sigurðsson ehf áttu sem áður segir lægsta tilboð sem hljóðaði upp kr. 412.469.948. Verklok eru áætluð 31. júlí 2022. Að sögn Guðmundar eru framkvæmdir við Garðasel í fullum gangi. Hafist verður handa um efnisöflun og aðra aðdrætti í næsta mánuði en vinna í húsinu hefst í byrjun árs 2022.\r\n\r\nFyrirtækið Sjammi ehf. er um þessar mundir að vinna við burðarvirki hússins og er gert ráð fyrir að vinna við að reisa einingar þess verði langt komin um áramót. Framundan er svo útboð vegna lóðarfrágangs ásamt því að kaupa inn búnað og innanstokksmuni og húsbúnað leikskólans.",
  "innerBlocks": []
}
Verksamningur um innanhússfrágang Garðasels - Skessuhorn