Bryan Battle var atkvæðamestur hjá Skallagrími gegn Álftanesi. Hér er hann í leik gegn ÍA. Ljósm. jho

Álftanes stöðvaði sigurgöngu Skallagríms

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Skallagrímur tók á móti liði Álftaness í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og varð að sætta sig við tap, lokatölur 79:91. Skallagrímur hafði unnið þrjá leiki í röð í deildinni fyrir leik kvöldsins og hefði með sigri getað nálgast liðin í efri hlutanum. Gestirnir voru þó alls ekki á því og byrjuðu leikinn af krafti, komust í 7:16 eftir miðjan fyrsta leikhluta og leiddu með tíu stigum, 15:25, þegar honum lauk. Heimamenn náðu góðum kafla í öðrum leikhluta og minnkuðu muninn í fimm stig, 28:33 en þá bættu gestirnir aftur í og staðan í hálfleik, 38:47.\r\n\r\nÍ byrjun þriðja leikhluta náðu Álftnesingar góðu áhlaupi, skoruðu tíu stig í röð á meðan hittni Skallagríms var ekki beint til fyrirmyndar. Þessi munur hélst til loka þriðjungsins þar sem Skallagrímsmenn voru alltaf að elta og gekk misvel, staðan 54:66 við flautuna. Liðin skoruðu síðan sitthvor 25 stigin í lokahlutanum og ljóst að sigurgöngu Skallagríms er lokið í bili, lokatölur í Fjósinu í Borgarnesi í gær, 79:91.\r\n\r\nStigahæstir hjá Skallagrími voru þeir Bryan Battle með 26 stig og 12 fráköst, Davíð Guðmundsson var með 16 stig og þeir Arnar Smári Bjarnason og Simun Kovac með 13 stig hvor og þá var Simun með 18 fráköst. Hjá Álftanesi var Cedrick Bowen með 23 stig, Friðrik Anton Jónsson með 21 stig og 10 fráköst og Ragnar Jósef Ragnarsson með 17 stig.\r\n\r\nSkallagrímur er nú í sjötta sæti deildarinnar með átta stig eftir tíu leiki en næsti leikur liðsins er gegn Fjölni föstudaginn 3. desember í Dalhúsum í Grafarvogi og hefst klukkan 18.",
  "innerBlocks": []
}
Álftanes stöðvaði sigurgöngu Skallagríms - Skessuhorn