{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Eftir hádegi í dag verður ný ríkisstjórn kynnt og sömuleiðis stjórnarsáttmáli sem Framsóknarflokkur, Sjálfstæðisflokkur og Vinstri hreyfingin grænt framboð hafa staðfest. Formlega tekur stjórnin síðan við á ríkisráðsfundi síðdegis.\r\n\r\nMiklar breytingar verða á ráðuneytum og verkaskiptingu þeirra. Ný ráðuneyti stofnuð og verkefni þannig færð milli ráðuneyta. Sjálfstæðisflokkur verður áfram með fimm ráðuneyti, Framsókn með fjögur og Vinstri græn þrjú, alls tólf ráðuneyti. Kynjaskipting er ekki jöfn, en sjö karlar sitja í nýrri ríkisstjórn og fimm konur. Þess ber að geta að samkvæmt heimildum Skessuhorns er gert ráð fyrir að Guðrún Hafsteinsdóttir (D) taki við dómsmálaráðuneytinu af Jóni Gunnarssyni eftir 18 mánuði. Við þá breytingu verður kynjaskipting jöfn í ráðuneytunum. Ráðherrar koma úr fimm kjördæmum af sex, enginn úr Norðausturkjördæmi.\r\n\r\n<strong>Þessi verða ráðherrar:</strong>\r\n\r\nBjarni Benediktsson (D) verður áfram fjármálaráðherra.\r\n\r\nÞórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir (D) verður utanríkisráðherra.\r\n\r\nGuðlaugur Þór Þórðarson (D) verður ráðherra umhverfis- og loftslagsmála.\r\n\r\nÁslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (D) verður ráðherra nýsköpunar, iðnaðar og háskóla.\r\n\r\nJón Gunnarsson (D) verður dómsmálaráðherra.\r\n\r\nWillum Þór Þórsson (B) verður heilbrigðisráðherra.\r\n\r\nSigurður Ingi Jóhannsson (B) verður innviðaráðherra.\r\n\r\nLilja Alfreðsdóttir (B) verður viðskipta- og menningarmálaráðherra.\r\n\r\nÁsmundur Einar Daðason (B) verður skóla- og barnamálaráðherra.\r\n\r\nKatrín Jakobsdóttir (V) verður áfram forsætisráðherra.\r\n\r\nGuðmundur Ingi Guðbrandsson (V) verður félags- og vinnumarkaðsráðherra.\r\n\r\nSvandís Svavarsdóttir (V) verður ráðherra matvæla, sjávarútvegs og landbúnaðar.",
"innerBlocks": []
}