Sianni Martin var allt í öllu hjá Snæfelli gegn Aþenu. Ljósm. sá

Snæfellsstúlkur náðu sigri gegn Aþenu í hörkuleik

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Snæfell skellti sér á Skagann í gærkvöldi og lék gegn liði Aþenu UMFK í 1. deild kvenna í körfuknattleik en Aþenustúlkur frá Kjalarnesi leika heimaleiki sína í vetur á Akranesi. Það má með sanni segja að hart hafi verið barist í íþróttahúsinu við Vesturgötu í gærkvöldi og hörkuleikur sem leikmenn buðu áhorfendum upp á. Snæfell byrjaði leikinn betur og komst í 0:6 og síðan í 2:13 eftir rúmar þrjár mínútur í fyrsta leikhluta. Aþena gafst þó aldeilis ekki upp og minnkaði muninn í fjögur stig, 14:18 og staðan 18:25 eftir fyrsta leikhluta. Í öðrum leikhluta hélt baráttan áfram og Aþena náði að minnka muninn í tvö stig, 29:31, eftir fimm mínútna leik en þá tók Snæfell kipp, skoraði 13 stig gegn aðeins fjórum stigum Aþenu og staðan í hálfleik 33:44.\r\n\r\nAþenustúlkur komu grimmar inn eftir leikhléið, skoruðu fyrstu tólf stigin og allt í einu komnar yfir í fyrsta skiptið í leiknum, 45:44. Undir lok þriðja leikhlutans var staðan 52:54 en Snæfell skoraði síðustu fimm stigin og kom sér í góða stöðu fyrir lokahlutann, staðan 52:59 þegar liðin fengu sér vatn í þurrar kverkarnar og ræddu málin. Í fjórða leikhluta var eins og Snæfell væri að sigla þessu heim, héldu þægilegu forskoti en Aþena neitaði að gefast upp og um rúman miðjan leikhlutann var munurinn aftur orðinn tvö stig, 66:68 og spennustigið orðið ansi hátt í höllinni. Snæfell náði að sýna styrkleika sinn í framhaldinu þegar liðið skoraði níu stig gegn aðeins tveimur og þó Aþena minnkaði muninn í þrjú stig á síðustu mínútunni þá dugði það ekki til. Rebekka Rán Karlsdóttir hitti úr öðru af tveimur vítaskotum sínum á lokasekúndunni og lokastaðan fjögurra stiga sigur Snæfells, 75:79.\r\n\r\nSianni Martin var allt í öllu hjá Snæfelli með 40 stig og þá var áðurnefnd Rebekka Rán öflug með 24 stig. Violet Morrow skoraði tæplega helming stiga Aþenu eða 40 stig og var með 16 fráköst, frábær leikmaður þar á ferð. Þá voru þær Ása Lind Wolfram og Tanja Ósk Brynjarsdóttir með 9 stig hvor og Bergþóra Holton Tómasdóttir með 8 stig og 13 fráköst.\r\n\r\nSnæfell er nú í 4. sæti deildarinnar með sex stig eins og Aþena, KR, Hamar-Þór og Stjarnan en liðin hafa leikið mismarga leiki. Næsti leikur Snæfells er gegn Fjölni B laugardaginn 4. des í Stykkishólmi og hefst klukkan 15.\r\n\r\nvaks\r\n\r\nMT Sianni Martin var allt í öllu hjá Snæfelli gegn Aþenu. Ljósm. sá",
  "innerBlocks": []
}
Snæfellsstúlkur náðu sigri gegn Aþenu í hörkuleik - Skessuhorn