{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Ríkisráð Íslands mun koma saman til tveggja funda í dag, sunnudaginn 28. nóvember. Fyrri fundurinn hefst klukkan 15 en þar mun forseti Íslands veita núverandi ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur lausn frá störfum. Á síðari fundinum sem hefst klukkan 16 mun forseti Íslands skipa nýtt ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur. Sömu flokkar og skipuðu síðustu ríkisstjórn; Framsóknarflokkur, Sjálfstæðisflokkur og Vinstri hreyfingin grænt framboð, mynda nýja. Í dag klukkan 13 mun stjórnarsáttmáli flokkanna verða birtur og sömuleiðis mun þá koma í ljós hverjir skipa nýja ríkisstjórn.",
"innerBlocks": []
}
Ný ríkisstjórn tekur við síðdegis í dag - Skessuhorn