Hertar sóttvarnaaðgerðir við komu frá skilgreindum löndum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Öllum sem koma til landsins og hafa dvalið meira en sólarhring síðastliðna 14 daga á skilgreindum hááhættusvæðum Covid-19 verður skylt að fara í PCR-próf við komuna til landsins og síðan í sóttkví sem lýkur með öðru PCR prófi fimm dögum síðar. Þetta gildir um alla sem dvalið hafa á hááhættusvæði, hvort sem þau eru bólusett eða ekki eða með sögu um fyrri sýkingu af Covid-19. Til hááhættusvæða teljast Botsvana, Esvatíní, Lesótó, Mósambík, Namibía, Simbabve og Suður-Afríka.\r\n\r\nSvandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur staðfest reglugerð þessa efnis í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Sóttvarnalæknir hefur jafnframt gefið út tilmæli þar sem Íslendingar eru hvattir til að ferðast ekki til þessara landa, óháð bólusetningarstöðu eða sögu um fyrri sýkingu af völdum Covid-19. Reglugerð heilbrigðisráðherra tók gildi frá og með deginum í dag.",
  "innerBlocks": []
}