Fréttir

true

Fjölmiðlafólk allt í kringum borðið

Það var mikið um að vera í gamla Landsbankahúsinu á Akranesi í dag. Útsendingar Útvarps Akraness hófust klukkan 13 og þegar blaðamann Skessuhorns bar að garði voru fulltrúar allra helstu fjölmiðla landsins mættir til að skrásetja viðburðinn. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir, fréttakona RÚV, var mætt til þess að taka viðtal við þau Hlédísi fjölmiðlakonu á…Lesa meira

true

Borgarbyggð skreytir fyrir jólin

Borgarbyggð hefur hafist handa við að setja upp jólaljós og skreytingar í stofnunum og útisvæði sveitarfélagsins. Frá þessu segir á vef Borgarbyggðar en nú er verið að ljúka við að klæða Skallagrímsgarð í jólafötin og verður formlega kveikt á jólatrénu mánudaginn 29. nóvember næstkomandi. Auk þess munu starfsmenn áhaldahússins setja upp götuskreytingar og skreyta jólatréð…Lesa meira

true

Gransöngvari á ferð í Melasveitinni

Á FB síðunni Fuglar á Vesturlandi birtir Elín Ósk Gunnarsdóttir í Belgsholti í Melasveit mynd af smáfugli sem villtist inn til hennar. Í fyrstu hélt hún að um væri að ræða músarindil en líklega var hér á ferðinni fugl sem nefnist gransöngvari. Slíkir fuglar eru einungis 8 grömm að þyngd en samkvæmt Wikipedia eru þetta…Lesa meira

true

Bylgjan líklega búin að ná hámarki í Grundarfirði

Í gærkvöldi voru 48 íbúar greindir með Covid-smit í Grundarfirði og 69 voru í sóttkví. Fjögur ný smit greindust í gær en fólkið var allt í sóttkví. Nú í hádeginu var sagt frá því á vef bæjarins að 42 PCR próf voru tekin í dag og 20 hraðpróf á heilsugæslustöðinni. Öll hraðprófin reyndust neikvæð.  „Í…Lesa meira

true

Jólatrén í Snæfellsbæ skína nú skært

Kveikt var á ljósum jólatrjánna á Hellissandi og í Ólafsvík í morgun með óhefðbundnum viðhöfnum vegna sóttvarna. Búið var að skipta grunnskólanum og leikskólanum á sinn tíma til að ekki kæmu of margir saman í einu. Blíðaskaparveður var þegar athafnirnar fóru fram. Þrír jólasveinar mættu á staðina og Jón Haukur Hilmarsson spilaði á gítar og…Lesa meira

true

Ræddu sjálfbæran og umhverfisvænan landbúnað og matvælaframleiðslu

Landbúnaðarháskóli Íslands og Háskólinn á Bifröst hafa tekið höndum saman um að á Vesturlandi byggist upp nýsköpunar- og þróunarsetur á sviði landbúnaðar, matvælaframleiðslu, sjálfbærni, ferðamála og nýtingu náttúrugæða að leiðarljósi. Byggir þessi vinna meðal annars á sýn Þórdísar Kolbrúnar R Gylfadóttur ráðherra atvinnumála um að þörf sé á því að hér á landi verði til…Lesa meira

true

Ljósin tendruð á jólatrénu á Akratorgi

Í morgun var jólaskemmtun með óhefðbundnu sniði á Akratorgi á Akranesi. Vegna samkomutakmarkana var brugðið á það ráð að bjóða leikskólabörnum í bæjarfélaginu að koma á torgið, ásamt dagforeldrum með þeirra börn. Afmælisbörnin Gunnar Berg og Sylva Sól Styrmisdóttir úr leikskólanum Akraseli fengu þann heiður að tendra ljósin á trénu. Skólakór Grundaskóla söng fjögur lög…Lesa meira

true

Birta íslenska kóvid-kortið á vef Ríkisútvarpsins

Tvær ríkisstofnanir; Landmælingar Íslands og Ríkisútvarpið, hafa tekið höndum saman um birtingu nýjustu Covid-19 upplýsinga hér á landi. Útbreiðsla smita er þar kortlögð og birt daglega klukkan ellefu að morgni á vefnum ruv.is/kveikur/covid/. Birt eru þrjú mismunandi kort; með nýgengi eftir byggðarlögum, staðsetningu tilfella síðasta dags og fjölda fólks í einangrun á hverjum stað. Upplýsingar…Lesa meira

true

Umtalsverð aukning útflutningstekna

Útflutningstekjur þjóðarbúsins af vöru- og þjónustuviðskiptum voru rúmir 356 milljarðar króna á þriðja ársfjórðungi. Það er um 44% aukning í krónum talið frá sama tímabili í fyrra. Gengi krónunnar var að jafnaði um 7% sterkara á þriðja fjórðungi í ár samanborið við sama fjórðung í fyrra og er aukningin þar með meiri í erlendri mynt,…Lesa meira

true

Fyrirlestur um persónuleika Snorra Sturlusonar

Þriðjudaginn 30. nóvember kl. 20 flytur Óttar Guðmundsson læknir fyrirlestur í Snorrastofu í Reykholti um Snorra Sturluson, sem ber yfirskriftina „Rýnt í persónuleika og óhamingju Snorra Sturlusonar“. Fyrirlesturinn, sem er hluti af fyrirlestraröðinni „Fyrirlestrar í héraði,“ er öllum opinn og er aðgangur ókeypis. Í erindinu er litast um að tjaldabaki Sturlungu og fjallað um persónuleika…Lesa meira