
Svipmynd af fundinum á Hvanneyri í gær. Ljósm. LbhÍ.
Ræddu sjálfbæran og umhverfisvænan landbúnað og matvælaframleiðslu
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Landbúnaðarháskóli Íslands og Háskólinn á Bifröst hafa tekið höndum saman um að á Vesturlandi byggist upp nýsköpunar- og þróunarsetur á sviði landbúnaðar, matvælaframleiðslu, sjálfbærni, ferðamála og nýtingu náttúrugæða að leiðarljósi. Byggir þessi vinna meðal annars á sýn Þórdísar Kolbrúnar R Gylfadóttur ráðherra atvinnumála um að þörf sé á því að hér á landi verði til öflug stofnun sem styrki samvinnu og nýsköpun á sviði landbúnaðar og matvælaframleiðslu með umhverfis- og loftslagsmál að leiðarljósi.\r\n\r\nÍ gær var haldinn fundur í húsakynnum Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri með þátttöku fulltrúa frá fyrirtækjum og stofnunum sem lýst hafa áhuga á að styðja við uppbyggingu nýsköpunar- og þróunarseturs háskólasamfélagsins á Vesturlandi. Um 30 manns mættu til að ræða um framtíð íslensks landbúnaðar og matvælaframleiðslu með sjálfbærni og umhverfismál að leiðarljósi. „Mikill hugur var í þátttakendum sem allir lýstu yfir áhuga á að vera í öflugu samstarfi við háskólana tvo á Vesturlandi við að móta aðgerðaáætlun og framtíðarsýn fyrir matvælalandið Ísland með áherslu á landbúnað,“ segir í tilkynningu eftir fundinn. Fundinn sátu meðal annars fulltrúar frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, Orkustofnun, Landsvirkjun, Bændasamtökum Íslands, Rannsóknarmiðstöð landbúnaðarins, Háskóla Íslands, Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi, Borgarbyggð, Breið þróunarfélagi, Símenntunarmiðstöð Vesturlands, Hugheimum, Orkídeu, Auðnu tæknitorgi og Íslandsstofu, auk fulltrúa frá LbhÍ og Háskólanum á Bifröst.\r\n\r\n<strong>Landið hefur burði til að verða leiðandi</strong>\r\n\r\n[caption id=\"attachment_49140\" align=\"alignleft\" width=\"278\"]<img class=\"wp-image-49140\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/11/Raeddu-sjalfbaeran-og-umhverfisvaenan-landbunad-og-matvaelaframleidsla_3-600x400.jpg\" alt=\"\" width=\"278\" height=\"185\" /> Áshildur Bragadóttur, nýsköpunar- og þróunarstjóri Landbúnaðarháskóla Íslands.[/caption]\r\n\r\nAð sögn Áshildar Bragadóttur, nýsköpunar- og þróunarstjóra Landbúnaðarháskóla Íslands sem meðal annarra hefur unnið að undirbúning stofnunar nýsköpunar- og þróunarsetursins, er framtíð íslensks landbúnaðar og matvælaframleiðslu björt. Tækifærin liggja meðal annars í því að horft sé til þeirra sóknarfæra sem felast í hreinni orku og auðlindum íslenskrar náttúru. Hagnýting nýrrar tækni, sjálfvirknivæðing, vöruþróun og nýsköpun í öllu starfsumhverfi landbúnaðar getur skipt greinina miklu máli og haft gríðarleg áhrif á tækifæri Íslands á sviði sjálfbærrar matvælaframleiðslu. Þannig velja neytendur um allan heim matvæli út frá þáttum eins og gæðum og umhverfisvitund og uppruni matvæla skiptir neytendur sífellt meira máli.\r\n\r\nÁshildur bendir einnig á að íslensk matvæli eru þekkt á erlendum mörkuðum fyrir að vera fyrsta flokks og áherslan á lúxusferðamennsku hefur gert það að verkum að fjöldi ferðamanna sækir Ísland heim með það fyrir augum að njóta þess besta sem landið hefur upp á að bjóða. „Það var virkilega ánægjulegt að finna að fjölmargir deila þeirri sýn sem við höfum til þessara greina atvinnulífsins, en á sama tíma er mikilvægt að til staðar sé stuðningur við nýsköpun og þróun á þessu sviði. Með stuðningi tveggja öflugra háskóla á Vesturlandi teljum við nýsköpunar- og þróunarsetrinu vel komið fyrir á þessu landsvæði þó setrið muni þjóna landinu öllu,“ segir Áshildur Bragadóttir nýsköpunar- og þróunarstjóri LbhÍ.",
"innerBlocks": []
}