
Stærð hringjanna gefur vísbendingu um fjölda nýsmita. Svona er staðan í dag.
Birta íslenska kóvid-kortið á vef Ríkisútvarpsins
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Tvær ríkisstofnanir; Landmælingar Íslands og Ríkisútvarpið, hafa tekið höndum saman um birtingu nýjustu Covid-19 upplýsinga hér á landi. Útbreiðsla smita er þar kortlögð og birt daglega klukkan ellefu að morgni á vefnum ruv.is/kveikur/covid/. Birt eru þrjú mismunandi kort; með nýgengi eftir byggðarlögum, staðsetningu tilfella síðasta dags og fjölda fólks í einangrun á hverjum stað. Upplýsingar á síðunni byggjast á gögnum sem send eru úr smitsjúkdómaskrá sóttvarnalæknis daglega og miðast við stöðuna klukkan sex að morgni.\r\n\r\nÁ vefnum er meðal annars að finna upplýsingar um fjölda smita eftir byggðarlögum miðað við 100 þúsund íbúa. Í dag er Grundarfjörður þar í hæsta sæti með 5.568 smit. Í öðru sæti eru Hafnir með 3.509 smit og Raufarhöfn í þriðja með 3.226 smit. Í sætunum þar á eftir koma Sandgerði, Grímsnes- og Grafningshreppur, Kópasker, Patreksfjörður, Dalvík, Breiðdalsvík og Hólmavík.\r\n\r\n<a href=\"https://www.ruv.is/kveikur/covid/\">Sjá nánar hér</a>",
"innerBlocks": []
}