Löng biðröð í skimun framan við heilsugæslustöð HVE í Grundarfirði. Ljósm. tfk.

Bylgjan líklega búin að ná hámarki í Grundarfirði

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í gærkvöldi voru 48 íbúar greindir með Covid-smit í Grundarfirði og 69 voru í sóttkví. Fjögur ný smit greindust í gær en fólkið var allt í sóttkví. Nú í hádeginu var sagt frá því á vef bæjarins að 42 PCR próf voru tekin í dag og 20 hraðpróf á heilsugæslustöðinni. Öll hraðprófin reyndust neikvæð.  „Í gær og fyrradag greindust 13 með Covid-smit, af þeim voru 12 í sóttkví. Það gefur vonir um að við séum að ná utan um þessa smitbylgju,“ segir Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri á vef Grundarfjarðarbæjar.",
  "innerBlocks": []
}
Bylgjan líklega búin að ná hámarki í Grundarfirði - Skessuhorn