{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í morgun var jólaskemmtun með óhefðbundnu sniði á Akratorgi á Akranesi. Vegna samkomutakmarkana var brugðið á það ráð að bjóða leikskólabörnum í bæjarfélaginu að koma á torgið, ásamt dagforeldrum með þeirra börn. Afmælisbörnin Gunnar Berg og Sylva Sól Styrmisdóttir úr leikskólanum Akraseli fengu þann heiður að tendra ljósin á trénu. Skólakór Grundaskóla söng fjögur lög undir stjórn bæjarlistakonunnar Valgerðar Jónsdóttur. Skemmtunin tókst með prýðum og börnin skemmtu sér vel.",
"innerBlocks": []
}
Ljósin tendruð á jólatrénu á Akratorgi - Skessuhorn