{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Það var mikið um að vera í gamla Landsbankahúsinu á Akranesi í dag. Útsendingar Útvarps Akraness hófust klukkan 13 og þegar blaðamann Skessuhorns bar að garði voru fulltrúar allra helstu fjölmiðla landsins mættir til að skrásetja viðburðinn. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir, fréttakona RÚV, var mætt til þess að taka viðtal við þau Hlédísi fjölmiðlakonu á N4 og verkefnastjóra og Óla Palla, landsstjóra Rokklands og Füzz á RÚV með meiru. Sigurður Elvar Þórólfsson, ritstjóri Skagafrétta, beið síðan á kantinum eftir að röðin kæmi að honum.",
"innerBlocks": []
}