{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Þriðjudaginn 30. nóvember kl. 20 flytur Óttar Guðmundsson læknir fyrirlestur í Snorrastofu í Reykholti um Snorra Sturluson, sem ber yfirskriftina „Rýnt í persónuleika og óhamingju Snorra Sturlusonar“. Fyrirlesturinn, sem er hluti af fyrirlestraröðinni „Fyrirlestrar í héraði,“ er öllum opinn og er aðgangur ókeypis.\r\n\r\nÍ erindinu er litast um að tjaldabaki Sturlungu og fjallað um persónuleika og óhamingju Snorra með augum geðlæknisfræðinnar. Reynt er að varpa ljósi á dapurleg endalok Snorra og samskipti hans við bræður sína, konur og börn.\r\n\r\nÓttar Guðmundsson (f. 1948) útskrifaðist sem stúdent frá MR árið 1968 og lauk kandídatspróf í læknisfræði árið 1975. Doktorsprófi frá Gautaborgarháskóla lauk hann síðan árið 1984. Hann hefur starfað hjá SÁÁ og á geðsviði Landspítala frá 1985. Hann hefur gefið út nokkrar bækur um margvísleg efni, svo sem kynlíf, sjálfsvíg, áfengi, Megas, dauðann og sögu geðsjúkdóma á Íslandi. Síðustu bækur hans hafa fjallað um Íslendingasögur og Sturlungu, þ.e. Hetjur og hugarvíl, Frygð og fornar hetjur og Sturlunga geðlæknisins. Þá hefur Óttar skrifað fjölmargar greinar í blöð og tímarit um margvísleg efni.\r\n\r\nFyrirlesturinn er styrktur af Uppbyggingarsjóði Vesturlands.\r\n\r\n<em>-fréttatilkynning.</em>",
"innerBlocks": []
}
Fyrirlestur um persónuleika Snorra Sturlusonar - Skessuhorn