
Borgarbyggð er þessa dagana að klæða sig í jólafötin. Ljósm. af vefsíðu Borgarbyggðar
Borgarbyggð skreytir fyrir jólin
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Borgarbyggð hefur hafist handa við að setja upp jólaljós og skreytingar í stofnunum og útisvæði sveitarfélagsins. Frá þessu segir á vef Borgarbyggðar en nú er verið að ljúka við að klæða Skallagrímsgarð í jólafötin og verður formlega kveikt á jólatrénu mánudaginn 29. nóvember næstkomandi. Auk þess munu starfsmenn áhaldahússins setja upp götuskreytingar og skreyta jólatréð á Hvanneyri á næstu dögum.\r\n\r\nÍ ljósi aðstæðna í samfélaginu verður ekki hefðbundin aðventuhátíð en þess í stað munu börn úr 1. bekk í Grunnskóla Borgarness kveikja á trénu með jólasveinum sem eru með sóttvarnarreglurnar á hreinu. Jólatréð í ár er úr heimabyggð en svo virðist vera sem skemmtileg hefð sé nú að myndast í sveitarfélaginu en þetta er þriðja árið í röð sem jólatréð kemur úr Borgarbyggð. Þá eru íbúar hvattir til þess að aðstoða við að lýsa upp fallega sveitarfélagið sitt.",
"innerBlocks": []
}