
Verðmæti útflutts áls jókst um 72% fyrstu þrjá ársfjórðungana.
Umtalsverð aukning útflutningstekna
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Útflutningstekjur þjóðarbúsins af vöru- og þjónustuviðskiptum voru rúmir 356 milljarðar króna á þriðja ársfjórðungi. Það er um 44% aukning í krónum talið frá sama tímabili í fyrra. Gengi krónunnar var að jafnaði um 7% sterkara á þriðja fjórðungi í ár samanborið við sama fjórðung í fyrra og er aukningin þar með meiri í erlendri mynt, eða sem nemur um 54%. Þetta má sjá í tölum sem Hagstofan birti í vikunni. Útflutningstekjur af sjávarafurðum voru um 65 milljarðar króna á þriðja ársfjórðungi og stóðu nánast í stað á milli ára á föstu gengi. Útflutningstekjur af eldisafurðum voru rúmir átta milljarðar króna og jukust um 26% á milli ára á sama kvarða. Í ferðaþjónustu, sem varð fyrir hvað mestum skakkaföllum vegna Covid-19, námu útflutningstekjur af erlendum ferðamönnum á þriðja ársfjórðungi 107 milljörðum króna, sem er 248% aukning á föstu gengi miðað við sama tímabil í fyrra. Stór liður í útflutningstekjum þjóðarbúsins er ál og álafurðir, en tekjur af þeirri starfsemi námu rúmum 79 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi. Það er rúmlega 72% aukning á milli ára í erlendri mynt. Aukningin skýrist að stærstum hluta af umtalsverðum verðhækkunum á heimsmarkaðsverði á áli á undanförnum mánuðum, sem hefur ekki verið hærra í 13 ár.",
"innerBlocks": []
}