Fréttir

true

Bylgjan líklega búin að ná hámarki í Grundarfirði

Í gærkvöldi voru 48 íbúar greindir með Covid-smit í Grundarfirði og 69 voru í sóttkví. Fjögur ný smit greindust í gær en fólkið var allt í sóttkví. Nú í hádeginu var sagt frá því á vef bæjarins að 42 PCR próf voru tekin í dag og 20 hraðpróf á heilsugæslustöðinni. Öll hraðprófin reyndust neikvæð.  „Í…Lesa meira

true

Jólatrén í Snæfellsbæ skína nú skært

Kveikt var á ljósum jólatrjánna á Hellissandi og í Ólafsvík í morgun með óhefðbundnum viðhöfnum vegna sóttvarna. Búið var að skipta grunnskólanum og leikskólanum á sinn tíma til að ekki kæmu of margir saman í einu. Blíðaskaparveður var þegar athafnirnar fóru fram. Þrír jólasveinar mættu á staðina og Jón Haukur Hilmarsson spilaði á gítar og…Lesa meira

true

Ræddu sjálfbæran og umhverfisvænan landbúnað og matvælaframleiðslu

Landbúnaðarháskóli Íslands og Háskólinn á Bifröst hafa tekið höndum saman um að á Vesturlandi byggist upp nýsköpunar- og þróunarsetur á sviði landbúnaðar, matvælaframleiðslu, sjálfbærni, ferðamála og nýtingu náttúrugæða að leiðarljósi. Byggir þessi vinna meðal annars á sýn Þórdísar Kolbrúnar R Gylfadóttur ráðherra atvinnumála um að þörf sé á því að hér á landi verði til…Lesa meira

true

Ljósin tendruð á jólatrénu á Akratorgi

Í morgun var jólaskemmtun með óhefðbundnu sniði á Akratorgi á Akranesi. Vegna samkomutakmarkana var brugðið á það ráð að bjóða leikskólabörnum í bæjarfélaginu að koma á torgið, ásamt dagforeldrum með þeirra börn. Afmælisbörnin Gunnar Berg og Sylva Sól Styrmisdóttir úr leikskólanum Akraseli fengu þann heiður að tendra ljósin á trénu. Skólakór Grundaskóla söng fjögur lög…Lesa meira

true

Birta íslenska kóvid-kortið á vef Ríkisútvarpsins

Tvær ríkisstofnanir; Landmælingar Íslands og Ríkisútvarpið, hafa tekið höndum saman um birtingu nýjustu Covid-19 upplýsinga hér á landi. Útbreiðsla smita er þar kortlögð og birt daglega klukkan ellefu að morgni á vefnum ruv.is/kveikur/covid/. Birt eru þrjú mismunandi kort; með nýgengi eftir byggðarlögum, staðsetningu tilfella síðasta dags og fjölda fólks í einangrun á hverjum stað. Upplýsingar…Lesa meira

true

Umtalsverð aukning útflutningstekna

Útflutningstekjur þjóðarbúsins af vöru- og þjónustuviðskiptum voru rúmir 356 milljarðar króna á þriðja ársfjórðungi. Það er um 44% aukning í krónum talið frá sama tímabili í fyrra. Gengi krónunnar var að jafnaði um 7% sterkara á þriðja fjórðungi í ár samanborið við sama fjórðung í fyrra og er aukningin þar með meiri í erlendri mynt,…Lesa meira

true

Fyrirlestur um persónuleika Snorra Sturlusonar

Þriðjudaginn 30. nóvember kl. 20 flytur Óttar Guðmundsson læknir fyrirlestur í Snorrastofu í Reykholti um Snorra Sturluson, sem ber yfirskriftina „Rýnt í persónuleika og óhamingju Snorra Sturlusonar“. Fyrirlesturinn, sem er hluti af fyrirlestraröðinni „Fyrirlestrar í héraði,“ er öllum opinn og er aðgangur ókeypis. Í erindinu er litast um að tjaldabaki Sturlungu og fjallað um persónuleika…Lesa meira

true

Kjörbréf 63 alþingismanna samþykkt

Á þingsetningarfundi Alþingis sem fram var haldið í gær voru greidd atkvæði um staðfestingu kjörbréfa alþingismanna. Kosið var um fjórar tillögur sem hver um sig gekk misjafnlega langt. Tillaga meirihluta kjörbréfanefndar um að staðfesta kjörbréf allra 63 þingmanna, sem m.a. byggist á að láta niðurstöðu úr endurtalningu í NV kjördæmi gilda, var samþykkt með 42…Lesa meira

true

Lionsmenn leigja út ljósakrossa á Akranesi

Að venju verður Lionsklúbbur Akraness með útleigu á ljósakrossum í kirkjugarðinum í Görðum á Akranesi nú í byrjun aðventunnar. Afgreiðslutímar að þessu sinni verða á morgun, laugardaginn 27. nóvember frá klukkan 11.00. til 15.30, sunnudaginn 28. nóvember frá kl. 13.00. – 15.30. og laugardaginn 4. desember frá kl. 13.00. – 15.30. Lionsklúbbur Akraness hefur frá…Lesa meira

true

Útkeyrsla matarbakka til eldri borgara er lögbundin þjónusta

Starfsmenn Skessuhorns hafa af og til síðustu mánuði orðið varir við leigubílstjórann Ara Grétar Björnsson þar sem hann hefur komið nákvæmlega á sömu mínútunni með matarbakka fyrir eldri borgara sem búa í á efri hæðum hússins sem hýsir ritstjórnina. Ari Grétar hefur síðustu tæplega sjö ár séð um þessa þjónustu á Akranesi og keyrir daglega…Lesa meira