Fréttir

true

Sviðin verkuð með gamla laginu

Félagarnir og mágarnir Hilmar Björnsson á Akranesi og Júlíus Ólafsson voru um síðustu helgi að svíða dilkahausa með gamla laginu, þ.e. með Kósangasi. Almennt er viðurkennt að með þeirri aðferð fæst betra bragð en með nútíma aðferðinni, þó vissulega sé þetta seinlegra. Þeir félagar segjast alltaf halda í þennan sið og segja hann ómissandi hluta…Lesa meira

true

Útvarp Akranes byrjar á morgun

Útvarp Akranes byrjar útsendingar kl. 13:00 á morgun, föstudag. Athyglisvert er að þessi útvarpsstöð Sundfélags Akraness er komin vel á fertugsaldur og sendir nú út í 34. sinn. Það var Sigurður Sverrisson, þáverandi ritstjóri Skagablaðsins, sem var upphafsmaðurinn að Útvarpi Akranes. Margir Skagamenn hafa byrjað sinn feril í fjölmiðlun á Útvarpi Akranes. Þar má nefna…Lesa meira

true

Taphrina Skallagrímskvenna heldur áfram

Skallagrímskonur áttu ekki mikla möguleika þegar þær sóttu Íslandsmeistara Vals heim í Subway deild kvenna í gærkvöldi. Skallagrímur byrjaði þó af krafti, skoraði sex stig í röð og komst í 6:2. En síðan skoruðu þær ekki stig í tæpar sex mínútur og staðan 13:8 eftir fyrsta leikhluta. Annar leikhluti var á sömu nótum eins og…Lesa meira

true

Hafa safnað 270 tonnum af brotajárni á síðustu vikum

Undanfarnar vikur hefur staðið yfir sérstakt hreinsunarátak í söfnun brotajárns og fleiri úrgangsflokka í dreifbýli Borgarbyggðar í samstarfi við fyrirtækið Hringrás. Frá því er greint á vef Borgarbyggðar að íbúum í dreifbýli hafi staðið til boða að panta þjónustuna heim á hlað en um er að ræða annars vegar gáma fyrir úrganginn og hins vegar…Lesa meira

true

Ljós tendruð á morgun á jólatrjám í Snæfellsbæ

Vegna takmarkana verður ekki hægt að hafa hefðbundna athöfn við tendrun jólaljósa þetta árið í Snæfellsbæ og verða ljósin því tendruð með sambærilegum hætti og í fyrra, segir á vefsíðu Snæfellsbæjar. Börn í leik- og grunnskóla Snæfellsbæjar tendra ljósin með sínum hóp á skólatíma að morgni föstudagsins 26. nóvember og ekki verður boðið til hátíðlegs viðburðar…Lesa meira

true

Æfa í von um að halda megi jólatónleika

Ekki er hægt að ganga að því sem vísu að hægt verði að njóta þess að fara á tónleika þessa aðventu, en allir vona þó hið besta. Kirkjukór Ólafsvíkur, ásamt Skólakór Snæfellsbæjar, ætlar að standa fyrir jólatónleikum eins og svo oft áður ef hægt verður. Kirkjukórinn var á fullu að undirbúa sig síðastliðinn laugardag þegar…Lesa meira

true

„Einelti er sár staðreynd en sannleikur engu að síður“

Umræða um einelti sprettur skýtur jafnt og þétt upp kollinum og því ljóst að þetta þjóðfélagsmein er hvergi nærri upprætt. Á alþjóðlegum degi gegn einelti, 8. nóvember síðastliðinn, skrifaði Hannes S Jónsson faðir á Akranesi pistil sem vakti athygli víða, einnig í fjölmiðlum. Meðal annars var rætt við Hannes og fjölskyldu hans í Skessuhorni 17.…Lesa meira

true

Flugvöllur er eins og lítið samfélag

Skagakonan Maren Lind Másdóttir er forstöðumaður mannvirkja og innviða hjá Isavia, sem annast uppbyggingu og rekstur Keflavíkurflugvallar. Sem forstöðumaður ber hún ábyrgð á rekstri og viðhaldi fasteigna, véltæknikerfa og annarra innviða en hennar teymi rekur Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli. Hún hefur þar af leiðandi í mörg horn að líta í fjölbreyttu og ábyrgðarmikla starfi.…Lesa meira

true

Leikskólinn í Grundarfirði lokaður út vikuna

Í gærkvöldi var staðan í kóvidbylgjunni í Grundarfirði þannig að 46 íbúar höfðu verið greindir með smit. Í færslu Bjargar Ágústsdóttur bæjarstjóra kemur fram að í gær bárust tilkynningar um níu ný smit, en af þeim höfðu átta verið í sóttkví. Í sóttkví voru í gærkvöldi 91 í Grundarfirði, en voru 175 fyrr um daginn.…Lesa meira

true

Stór hópur sem tengist Brekkubæjarskóla sendur í sóttkví

Nokkur Covid-19 smit hafa nú verið greind í Brekkubæjarskóla á Akranesi og er talsvert stór hópur nemenda, og þar af leiðandi einnig aðstandenda þeirra, kominn í sóttkví af þeim sökum. Fram kemur í tilkynningu frá skólanum, sem send var út í gærkvöldi, að einn nemandi í hverjum af bekkjunum 1. BS, 2. BS, og 10.…Lesa meira