Sviðin verkuð með gamla laginu

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Félagarnir og mágarnir Hilmar Björnsson á Akranesi og Júlíus Ólafsson voru um síðustu helgi að svíða dilkahausa með gamla laginu, þ.e. með Kósangasi. Almennt er viðurkennt að með þeirri aðferð fæst betra bragð en með nútíma aðferðinni, þó vissulega sé þetta seinlegra. Þeir félagar segjast alltaf halda í þennan sið og segja hann ómissandi hluta af haustverkunum að lokinni sláturtíð. Eftir að búið er að svíða, saga og hreinsa segjast þeir setja hausana í saltpækil í einn sólarhring og eftir það er auðvelt að þrífa hausana og setja í frost; nú eða beint í pottinn.",
  "innerBlocks": []
}
Sviðin verkuð með gamla laginu - Skessuhorn