Kjörbréf 63 alþingismanna samþykkt

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á þingsetningarfundi Alþingis sem fram var haldið í gær voru greidd atkvæði um staðfestingu kjörbréfa alþingismanna. Kosið var um fjórar tillögur sem hver um sig gekk misjafnlega langt. Tillaga meirihluta kjörbréfanefndar um að staðfesta kjörbréf allra 63 þingmanna, sem m.a. byggist á að láta niðurstöðu úr endurtalningu í NV kjördæmi gilda, var samþykkt með 42 atkvæðum, 16 alþingismenn sátu hjá við afgreiðsluna og fimm voru á móti.\r\n\r\nÁður en til afgreiðslu ofangreindrar tillögu kom voru greidd atkvæði um þrjár aðrar. Í fyrsta lagi að staðfesta kjörbréf 47 þingmanna, eða allra annarra en þingmanna Norðvesturkjördæmis og uppbótarþingmanna, og boða til uppkosningar í NV kjördæmi. Hana báru fram þær Svandís Svavarsdóttir og Þórunn Sveinbjarnardóttir sem báður sátu í kjörbréfanefnd. Sú tillaga var felld sem og tillaga Björns Leví Gunnarssonar um að dæma öll 63 kjörbréf ógild og boða til nýrra þingkosninga. Loks var felld tillaga þess efnis að láta fyrri talningu í Norðvesturkjördæmi gilda og staðfesta kjörbréf samkvæmt því.\r\n\r\nÞar með lýkur óvissu sem ríkt hefur í rétta tvo mánuði um hverjir raunverulega taka sæti á Alþingi. Óvissan var vegna vankanta á meðferð og geymslu kjörgagna í Norðvesturkjördæmi. Fráfarandi stjórnarflokkar hafa náð samkomulagi um myndun nýrrar ríkisstjórnar og er þess að vænta að hún verði kynnt á allra næstu dögum.",
  "innerBlocks": []
}
Kjörbréf 63 alþingismanna samþykkt - Skessuhorn