Ari Grétar með fullan bíl af matarbökkum. Ljósm. mm

Útkeyrsla matarbakka til eldri borgara er lögbundin þjónusta

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Starfsmenn Skessuhorns hafa af og til síðustu mánuði orðið varir við leigubílstjórann Ara Grétar Björnsson þar sem hann hefur komið nákvæmlega á sömu mínútunni með matarbakka fyrir eldri borgara sem búa í á efri hæðum hússins sem hýsir ritstjórnina. Ari Grétar hefur síðustu tæplega sjö ár séð um þessa þjónustu á Akranesi og keyrir daglega alla vikuna alla daga ársins. Um er að ræða lögbundna þjónustu en samkvæmt lögum skal sveitarstjórn sjá um að félagsþjónusta aldraðra sé fyrir hendi í sveitarfélaginu eftir þörfum. Þar er meðal annars átt við heimaþjónustu, félagsráðgjöf og heimsendingu matar. Eldri borgararnir á Akranesi panta matinn frá Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða og Ari Grétar er mættur stundvíslega klukkan ellefu til að sækja bakkana og dreifa þeim víðs vegar um Akranes hvern einasta dag.\r\n\r\nAðalvinna Ara Grétars er á læknavaktinni í Reykjavík þar sem hann er bílstjóri á kvöld- og helgarvöktum og hefur hann verið í því starfi í 13 ár. Þá er hann með fastar ferðir á leigubílnum sínum þrisvar í viku með skjólstæðinga sem fara í nýrnavélina á Landspítalanum. Fyrir skömmu stofnaði Ari Grétar fyrirtækið Allirsáttir ehf. og er það eina fyrirtækið á Vesturlandi sem hefur starfsleyfi frá ráðuneytinu til að sinna stuðnings- og stoðþjónustu og einnig ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk.",
  "innerBlocks": []
}
Útkeyrsla matarbakka til eldri borgara er lögbundin þjónusta - Skessuhorn