Fréttir

true

Smitum heldur áfram að fjölga á Vesturlandi

Samkvæmt nýjum tölum Lögreglunnar á Vesturlandi hækkar enn tala smitaðra með Covid-19 í landshlutanum. Þeir eru nú 168 talsins og 203 eru að auki í sóttkví. Helsta breyting frá gærdeginum er sú að það fjölgar um 14 í einangrun á Akranesi og átta staðfest smit hafa verið greind í Grundarfirði, sem hafði um tíma verið…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði naumlega fyrir Hetti

Skallagrímsmenn lögðu í langferð í gær þegar þeir léku gegn liði Hattar frá Egilsstöðum í 1. deild karla í körfuknattleik. Ferðaþreytan kom aðeins við sögu í byrjun fyrsta leikhluta því Hattarmenn komust mest ellefu stigum yfir, 20:9, en Skallagrímur náði þó að klóra vel í bakkann seinni hlutann og staðan 22:18 eftir fyrsta leikhluta. Annar…Lesa meira

true

Veiran stígur niður fæti í Grundarfirði

Grundfirðingar hafa undanfarið alveg sloppið við covid-19 smit á svæðinu en í gær varð breyting þar á. Nú hafa nokkur smit verið staðfest og er það fólk komið í einangrun og fjölmargir að auki komnir í úrvinnslusóttkví. Til að mynda er leikskólinn Sólvellir lokaður í dag þar sem eitt tilfellið teygir anga sína þangað inn.…Lesa meira

true

Framkvæmdir að hefjast við Faxatorg á Akranesi

Síðdegis í dag eða fyrri hluta morguns verður umferð um Faxatorg á Akranesi takmörkuð. Ástæðan er sú að nú hefst vinna við tengingu nýrra lagna sem annars vegar liggja undir nýrri Faxabraut og hins vegar meðfram Þjóðbraut með tengingum við Dalbrautarreit. Hringtorgið verður á næstu vikum endurgert samhliða þessum lagnaframkvæmdum. Nú í fyrsta áfanga verður…Lesa meira

true

Íbúum á Vesturlandi fjölgaði um 320 síðustu tólf mánuði

Íbúum á Vesturlandi fjölgaði um 320 á tímabilinu 1. nóvemer 2020 til sama dags í ár. Hafa þeir í fyrsta skipti rofið 17 þúsund íbúa múrinn, eru nákvæmlega 17.025. Af einstökum sveitarfélögum fjölgaði hlutfallslega langmest í Helgafellssveit á Snæfellsnesi þar sem íbúafjöldinn hækkaði um 15, eða 21,5%. Þar búa nú 79. Það er jafnframt mesta…Lesa meira

true

Fyrstu kaupa íbúðir fjórum milljónum dýrari en fyrir ári

Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um fasteignaviðskipti á þriðja ársfjórðungi þessa árs. Seldar voru 1.562 fasteignir til þess hóps sem er að kaupa sína fyrstu fasteign á lífsleiðinni. Að meðaltali greiddu fyrstu kaupendur 45,4 milljónir króna fyrir 96,9 fermetra íbúð, eða sem nemur 469 þúsund krónum á hvern fermetra. „Í dag greiða fyrstu kaupendur að…Lesa meira

true

Umboðsmaður Alþingis telur bæjarstjórn ekki hafa fullnægt rannsóknarskyldu sinni

Umboðsmaður Alþingis birti 12. október síðastliðinn álit í máli sem snertir ráðningu yfirmanns Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar. Umsækjandi um starf slökkviliðsstjóra, sem ekki hlaut starfið, kvartaði til umboðsmanns yfir ráðningu bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar í starfið. Kvörtunin laut einkum að því að hæfasti umsækjandinn hefði ekki verið ráðinn, m.a. vegna þess að rannsókn og samanburði á hæfni…Lesa meira

true

Vel lukkað Heima-Streymi – myndasyrpa

Heima-Streymi var haldið á Akranesi á laugardagskvöldið í stað Heima-Skaga, sem féll niður um síðustu helgi vegna Covid-19 í bænum. Vakti uppátækið mikla lukku meðal þeirra sem á horfðu. Streymið var haldið í Blikksmiðju Guðmundar að viðstöddum örfáum gestum. Var streymt í beinni útsendingu á Youtube. Það var tónlistarfólkið Andrea Gylfadóttir, Eðvarð Lárusson og Bjartmar…Lesa meira

true

Gat kom á sjókví í Arnarfirði

Matvælastofnun barst tilkynning frá Arnarlax mánudaginn 30. ágúst um gat á nótarpoka einnar sjókvíar Arnarlax við Haganes í Arnarfirði. Gatið uppgötvaðist við neðansjávareftirlit og er viðgerð nú lokið. Samkvæmt upplýsingum Arnarlax var gatið á um tveggja metra dýpi og reyndist vera um það bil 2×2 metrar að stærð. Í þessari tilteknu kví voru um 120.000…Lesa meira

true

Enn fjölgar þeim sem eru í einangrun á Akranesi

Lögreglan á Vesturlandi birti nú í hádeginu nýjar tölur um fjölda smitaðra og í sóttkví vegna Covid-19 á Vesturlandi. Frá því í gær hefur fjölgað um 13 í hópi þeirra sem eru í einangrun á Akranesi og Hvalfjarðarsveit. Þeir eru nú 118 talsins. Mjög fækkar í sóttkví á sama tíma, eru nú 217 á svæðinu.…Lesa meira