Fyrstu kaupa íbúðir fjórum milljónum dýrari en fyrir ári

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um fasteignaviðskipti á þriðja ársfjórðungi þessa árs. Seldar voru 1.562 fasteignir til þess hóps sem er að kaupa sína fyrstu fasteign á lífsleiðinni. Að meðaltali greiddu fyrstu kaupendur 45,4 milljónir króna fyrir 96,9 fermetra íbúð, eða sem nemur 469 þúsund krónum á hvern fermetra. „Í dag greiða fyrstu kaupendur að meðaltali fjórum milljónum króna meira fyrir sína fyrstu íbúð en fyrir ári síðan, en meðalkaupverð hefur hækkað úr 41,4 í 45,4 milljónir króna. Á síðastliðnum ársfjórðungi var hækkunin um 700 þúsund krónur,“ segir í samantekt Þjóðskrár. Mest greiða kaupendur fyrir sína fyrstu eign á höfuðborgarsvæðinu, um 51,5 milljónir króna fyrir 91,8 fermetra íbúð. Til samanburðar er hagkvæmasta verðið á Austurlandi þar sem fyrstu kaupendur greiða að meðaltali 28 milljónir króna fyrir 140 fermetra íbúð. Á þriðja ársfjórðungi var hlutfall fyrstu kaupenda lægst á Norðurlandi vestra eða um 25% allra kaupenda. Hæst var hlutfallið á Vestfjörðum eða um 45%. Þó er vakin athygli á að fremur fáir samningar geta legið að baki viðskiptum í einstaka landshlutum á hverjum ársfjórðungi.\r\n\r\nFjöldi fyrstu kaupenda hefur verið yfir 1.500 frá þriðja ársfjórðungi 2020 en fjöldi fyrstu kaupenda hafði áður hæst farið í 1.427 á öðrum ársfjórðungi 2007.",
  "innerBlocks": []
}
Fyrstu kaupa íbúðir fjórum milljónum dýrari en fyrir ári - Skessuhorn