{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Samkvæmt nýjum tölum Lögreglunnar á Vesturlandi hækkar enn tala smitaðra með Covid-19 í landshlutanum. Þeir eru nú 168 talsins og 203 eru að auki í sóttkví. Helsta breyting frá gærdeginum er sú að það fjölgar um 14 í einangrun á Akranesi og átta staðfest smit hafa verið greind í Grundarfirði, sem hafði um tíma verið án smits. Þá fækkar smituðum í Dölum þar sem einungis einn er enn í sóttkví.\r\n\r\nTölurnar fyrir Vesturland eru þannig að á Akranesi eru 132 í einangrun og 127 í sóttkví. Á svæði Heilsugæslustöðvar HVE í Borgarnesi eru 24 í einangrun og 27 í sóttkví. Í Grundarfirði eru 8 í einangrun og 39 í sóttkví. Í Ólafsvík eru þrír í einangrun og sex í sóttkví. Loks í Búðardal er einn í einangrun og fjórir í sóttkví. Stykkishólmur er eina svæðið án smits eins og sakir standa.\r\n\r\nÁ landinu öllu var metfjöldi smita staðfest í gær, en 168 smit voru staðfest og einungis 46 þeirra í sóttkví. Því voru staðfest smit 122 hjá þeim sem ekki voru í sóttkví og því talsverðar líkur á að smittölur verði háar áfram næstu daga.",
"innerBlocks": []
}
Smitum heldur áfram að fjölga á Vesturlandi - Skessuhorn