{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Lögreglan á Vesturlandi birti nú í hádeginu nýjar tölur um fjölda smitaðra og í sóttkví vegna Covid-19 á Vesturlandi. Frá því í gær hefur fjölgað um 13 í hópi þeirra sem eru í einangrun á Akranesi og Hvalfjarðarsveit. Þeir eru nú 118 talsins. Mjög fækkar í sóttkví á sama tíma, eru nú 217 á svæðinu. Óbreyttur fjöldi er í einangrun á starfssvæði heilsugæslu HVE í Borgarnesi; 24 en 26 í sóttkví. Í Dölum er fólk óðum að ná bata, en þar eru nú þrír í einangrun og sjö í sóttkví. Í Ólafsvík eru þrír í einangrun og fimm í sóttkví. Loks eru tveir í sóttkví í Stykkishólmi. Grundarfjörður er smitlaus að þessu sinni og enginn í sóttkví.",
"innerBlocks": []
}
Enn fjölgar þeim sem eru í einangrun á Akranesi - Skessuhorn