
Tjaldsvæði í Snæfellsbæ voru vel nýtt á liðnu sumri. Í heildina dvöldu 10.140 gestir á tveimur tjaldsvæðum í Ólafsvík og á Hellissandi í sumar og fjölgaði um rúm 87,3% frá síðasta sumri, en hafa verður í huga að á síðasta ári voru óvenjufáir ferðamenn á landinu vegna kórónaveirufaraldursins. Frá þessu er greint á heimasíðu sveitarfélagsins.…Lesa meira








