
Nýja þjónustuhúsið á tjaldsvæðinu á Hellissandi undir lok septembermánaðar. Ljósm. SNB.
Tjaldsvæði Snæfellsbæjar vel nýtt í sumar
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Tjaldsvæði í Snæfellsbæ voru vel nýtt á liðnu sumri. Í heildina dvöldu 10.140 gestir á tveimur tjaldsvæðum í Ólafsvík og á Hellissandi í sumar og fjölgaði um rúm 87,3% frá síðasta sumri, en hafa verður í huga að á síðasta ári voru óvenjufáir ferðamenn á landinu vegna kórónaveirufaraldursins. Frá þessu er greint á heimasíðu sveitarfélagsins.\r\n\r\n„Í sumar var áberandi mest að gera í ágúst, en þann mánuð dvöldu á tjaldsvæðunum 3.617 gestir. Það er þó einkum gestafjöldi í september sem vekur athygli, en þá dvöldu 2.225 á tjaldsvæðunum og er það nokkurn veginn á pari við árin 2017, 2018 og 2019 þegar umtalsvert fleiri ferðamenn komu til landsins en nýliðið sumar. „Vekur það vonir um að aðsókn gesta verði meiri á næsta ári og e.t.v. nær heildarfjöldanum á árunum fyrir kórónaveiru,“ segir í frétt Snæfellsbæjar.",
"innerBlocks": []
}