Bókaormar Brekkubæjarskóla 2021

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Spurningakeppnin Bókaormar Brekkubæjarskóla er orðin fastur liður í skólastarfi í 4. – 7. bekk í Brekkubæjarskóla á Akranesi. Í ár var þetta í níunda skiptið sem keppnin fór fram. Lestur yfir sumartímann er jafn mikilvægur og lestur að vetri til og er þetta einn liður í því til að hvetja til sumarlestrar. Það er gert þannig að nemendur í 3. – 6. bekk fá að vori lista yfir þær bækur sem liggja til grundvallar í spurningakeppninni um haustið og þeir sem áhuga hafa geta því byrjað að undirbúa sig strax fyrir komandi keppni. Gott samstarf er við Bókasafn Akraness og er bókalistinn ásamt eintökum af bókunum aðgengilegur þar á meðan skólasafnið er lokað yfir sumarið. Þegar þessi sömu nemendur mæta í skólann að hausti í 4. – 7. bekk, halda þeir áfram að lesa og keppnin hefst upp úr miðjum október eða eftir vetrarfrí.\r\n\r\nÚrslitaviðureignin að þessu sinni var á milli liða 7. bekkjar og 4. bekkjar. Keppt er um farandbikar og fær árgangurinn nafnið sitt áritað á bikarinn. Einnig fær vinningsliðið í ár að velja 5-10 bækur sem verða keyptar inn fyrir skólasafnið. Úrslitin urðu þau að 7. bekkur vann með fimm stiga mun. Liðið skipuðu Dagný Bára Guðjónsdóttir, Iðunn Eybjörg Halldórsdóttir, Marinó Bjarki Brynjarsson og Anna Guðný Gautadóttir, sem var leikari hópsins.\r\n\r\nLestur er bestur. Áfram bókaormar!\r\n\r\n<em>Sigríður Halldóra Gunnarsdóttir, skólasafni Brekkubæjarskóla</em>\r\n\r\n[caption id=\"attachment_48650\" align=\"alignnone\" width=\"300\"]<img class=\"wp-image-48650 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/11/Bokaormar-Brekkubaejarskola-2021_2-600x366.jpg\" alt=\"\" width=\"300\" height=\"183\" /> Liðin sem kepptu til úrslita. 4. bekkur – rauðir, var skipað: Helgu Lind, Kötlu Lind, og Karen Önnu. Skjöld Þór leikara hópsins vantar á myndina. Vinningslið 7. bekkjar – svartir var skipað: Marinó Bjarka, Iðunni Eybjörgu og Dagnýju Bára. Önnu Guðnýju leikara vantar á mynd.[/caption]",
  "innerBlocks": []
}
Bókaormar Brekkubæjarskóla 2021 - Skessuhorn