{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Það eru ýmis verkefni sem Hollvinasamtök Borgarness standa fyrir. Í haust hafa samtökin merkt elstu húsin í gamla bænum og nýverið kom úr prentun götu- og þjónustukort sem teiknað er af Elínu Elísabet Einarsdóttur. Kortið er nú komið í dreifingu til fyrirtækja í Borgarnesi. „Hollvinasamtök Borgarness þakka öllum þeim fyrirtækjum sem tóku þátt í þessu verkefni og vilja jafnframt þakka Borgarverki fyrir að styrkja prentun á kortinu,“ segir í tilkynningu.",
"innerBlocks": []
}
Hollvinasamtök Borgarness gefa út götukort - Skessuhorn