
Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri á Akranesi. Ljósm. úr safni/kgk
Bæjarstjórinn lofar samstöðu bæjarbúa og upplýsir um stöðuna
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Mikið hefur mætt á bæjarstjórnendum á Akranesi, heilbrigðisstarfsfólki, fjölmörgum stofnunum og fleirum undanfarna daga vegna bylgju Covid-19. Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri fer í pistli á Facebook síðu sinni yfir stöðuna og þakkar skjót viðbrögð:\r\n\r\n„Verð að lofa samstöðu bæjarbúa við fréttum af hópsmiti hér á Akranesi. Saman getum við allt og það er útlit fyrir að við séum að ná toppi þessarar bylgju hér á Akranesi, nú þegar þrjú smit hafa greinst milli daga og fjöldi smita eru 105 talsins. Tel ég að snöggt viðbragð bæjarráðs með lokun leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla og frístundastarfs hafi skipt sköpum. Þetta var gert til að vernda samfélagið fyrir frekari smitum, ná utan um umfangið og skipuleggja markvisst næstu ákvarðanir. Hef ég fengið símtöl þar sem ég hef verið upplýstur um að þetta reyni á starfsemi minni fyrirtækja sem eiga erfitt með að halda úti starfsemi en einnig fengið þakkir stærri fyrirtækja sem telja þetta hafi verið lykill í því að þau geti haldið óbreyttri starfsemi til lengri tíma.“\r\n\r\nÞá segir Sævar Freyr að í framhaldi af víðtækri skimun starfsmanna í gær, laugardag, sem leyst var fyrir tilstuðlan frábærra starfsmanna HVE, þá séu þær góðu fréttir að leikskólar, grunnskólar, frístundastarf og tónlistarskóli verða með starfsemi á morgun en kvöldstarf félagsmiðstöðvarinnar Arnardals verður lokað eitthvað áfram. „Skerðing mun verða á þeim stöðum þar sem starfsmenn eða börn eru í einangrun eða sóttkví. Nánari upplýsingar munu berast til foreldra frá hverjum og einum skóla með fyrirvara þó að staðan breytist ekki frá því sem hún er í dag. Ég vil hvetja alla til að fara varlega, virða ábendingar og reglur sóttvarnaryfirvalda því þannig komumst við hjá frekari smitum. Við viljum öll njóta lífsins og læra að lifa með veirunni og gerum það nú með aðeins breyttu sniði. Verð ég að hrósa aðstandendum tónlistarhátíðarinnar HeimaSkaga sem fundu leið með stuðningi Blikksmiðju Guðmundar til að streyma til okkar tónlistarveislu í gærkvöldi. Knús á alla sem glíma við veiru fjandann. Vona innilega að þið náið hratt bata.“",
"innerBlocks": []
}