Brýn þörf fyrir fleiri í bakvarðasveit heilbrigðisstofnana
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "„Vegna örrar fjölgunar Covid-19 smita með auknu álagi á heilbrigðiskerfið bráðvantar fleira heilbrigðisstarfsfólk á skrá í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar,“ segir í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu. Óskað er eftir liðsinni heilbrigðisstarfsfólks sem er reiðubúið að koma tímabundið til starfa með skömmum fyrirvara, hvort sem er í fullt starf, hlutastarf eða tímavinnu, eftir því sem aðstæður leyfa.\r\n\r\nBakvarðasveit heilbrigðisþjónustu var sett á fót í upphafi Covid-19 faraldursins þegar ljóst var að mikilvægar heilbrigðisstofnanir gætu lent í mönnunarvanda vegna veikindafjarvista starfsfólks eða fjarvista vegna sóttkvíar. „Nú hefur ákall borist frá Landspítala og fleiri heilbrigðisstofnunum sem þurfa á fólki að halda og því er þess farið á leit að heilbrigðisstarfsfólk sem hefur tök á að veita liðsinni skrái sig í bakvarðasveitina. Nánari upplýsingar um bakvarðasveitina koma fram með skráningarformi sem er að finna á heimasíðu heilbrigðisráðuneytisins. Þar kemur fram að laun taka mið af kjarasamningi/ stofnanasamningi viðkomandi stéttarfélags á viðkomandi stofnun.",
"innerBlocks": []
}
Brýn þörf fyrir fleiri í bakvarðasveit heilbrigðisstofnana - Skessuhorn