Óveðri er spáð á sunnanverðu landinu í nótt

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Veðurstofan gerir ráð fyrir að hvassviðri 20-23 m/sek gangi yfir sunnanvert og suðvestanvert landið í nótt og er gul viðvörun í gildi vegna þessa á höfuðborgarsvæðinu og við Faxaflóa í nótt. Rokinu fylgir rigning við ströndina en slydda eða snjókoma verður inn til landsins og á fjallvegum. Viðvörun nær lengra fram eftir morgni á Suðurlandi, Suðausturlandi og á miðhálendinu. Við fjöll, meðal annars á Kjalarnesi, gæti því orðið býsna hvasst í nótt en einkum er þó varað við hvössum strengjum austar þegar birtu tekur að gæta í fyrramálið og fram undir hádegi.",
  "innerBlocks": []
}
Óveðri er spáð á sunnanverðu landinu í nótt - Skessuhorn