Mælifells Centaur frá 1934 komið fyrir á Landbúnaðarsafni

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í gær var komið með merkilegan grip til varðveislu á Landbúnaðarsafni Íslands á Hvanneyri. Þar var á ferðinni dráttarvél af gerðinni Centaur frá árinu 1934. Vélin er í eigu Þjóðminjasafnsins, en það var Kristján Helgi Bjartmarsson sem gerði við safnið samning um endurgerð vélarinnar, en hún var um tíma í eigu föður hans sr. Bjartmars Kristjánssonar prófasts og bónda á Mælifelli í Skagafirði. Viðgerð er nú lokið, vélin í prýðilegu ástandi og hefur verið komið fyrir á bási ásamt öðrum fágætum tækjum og búnaði í gamla fjósinu á Hvanneyri.\r\n\r\n<strong>Kom í stað hests</strong>\r\n\r\nUm Centaur vélarnar skrifaði Kristján Helgi: „Í árdaga vélvæðingar í landbúnaði á Íslandi komu ýmsar vélar við sögu, sem síðan hafa horfið af sjónarsviðinu. Þar á meðal er lítil dráttarvél af gerðinni Centaur, sem framleidd var hjá fyrirtæki, sem hét Centaur Tractor Corporation í Greenwich, Ohio, á fyrri hluta 20. aldar. Hugmyndin að baki hönnuninni var að búa til vél, sem kæmi í stað hests. Þannig var dráttarvélin sjálf lítið annað en mótor með eldsneytistanki, gírkassa og tveimur drifhjólum úr járni. Aftan í hana var hægt að hengja ýmis viðtæki, svo sem sláttuvél, plóg eða herfi, svo fátt eitt sé nefnt. Viðtækið sá um að útvega afturhjólin og sæti fyrir ökumann.“\r\n\r\n<strong>Finnur á Fellsenda flutti vélina inn</strong>\r\n\r\nKristján segir að töluvert hafi verið flutt af þessum vélum til Evrópu, þar af sex hingað til Íslands. Innflytjandi var Finnur Ólafsson heildsali frá Fellsenda í Dölum. Árið 1927 keypti Jóhannes Reykdal, frumkvöðull á Setbergi við Hafnarfjörð, fyrstu vélina. Fjórir Centaurar voru keyptir til Korpúlfsstaða 1929, í tíð Thors Jensen. Síðustu vélina keypti Ingólfur Kristjánsson bóndi á Jódísarstöðum í Eyjafirði árið 1934. Þetta var Model 2-G með raðnúmerið 3 34 525 og úr því má lesa að vélin var framleidd í mars árið 1934 og var 525. eintakið sem framleitt var það ár. Mótorinn er 2ja strokka fjórgengis bensínvél af gerð LeRoi, 12 hestafla. Aftan í vélina var tengd sláttuvél af gerð McCormick og saman myndar þetta eina heild eða samstæðu, með hjól sláttuvélarinnar sem afturhjól. Ökumaður situr í sæti sláttuvélarinnar, en löng stýrisstöng stendur aftur úr dráttarvélinni og eru á henni gír- og kúplingshandföng. Stýrisbúnaðurinn virkar þannig að hann snýr öllum framhluta samstæðunnar, þegar taka þarf beygju.“\r\n\r\nKristján segir að faðir hans séra Bjartmar Kristjánsson hafi eignast vélina 1949 og flutt hana að Mælifelli í Skagafirði, þar sem hann var prestur og bóndi. „Sr. Bjartmar hafði gott lag á vélum og kom það sér stundum vel, þegar kentárinn var annars vegar. Vélin var notuð til sláttu á Mælifelli í um tíu ár, eða þangað til nýr traktor var keyptur 1959. Árið 1990 var kentárinn gefinn Þjóðminjasafni Íslands og settur í geymslu.“\r\n\r\n<strong>Samið um endurgerðina</strong>\r\n\r\nHaustið 2014 var gerður samningur milli Þjóðminjasafns og sonar Sr. Bjartmars, Kristjáns Helga, um að hann kæmi vélinni í gangfært ástand að nýju, en síðan yrði hún hýst á Landbúnaðarsafninu á Hvanneyri. Kristján hafði lengi alið með sér þann draum að gera upp þessa vél, sem hann kynntist fyrst í barnæsku. Af hálfu safnsins stóð Lilja Árnadóttir, sviðsstjóri munasafns, að samningnum. Verkefninu er nú lokið, vélin er vel gangfær og á laugardaginn var henni bakkað inn á stall sinn í gamla fjósinu. Reyndar hefur hún einu sinni áður verið til sýnis á þessum stað, en það var á Hvanneyrardeginum í júlí 2018.\r\n\r\nRagnhildur Helga Jónsdóttir safnstjóri Landbúnaðarsafnsins veitti vélinni viðtöku. Gefin hefur verið út vönduð skýrsla um vélina og endurgerð hennar. Viðstaddir í gær voru áhugasamir heimamenn auk félaga úr Fergusonfélaginu og fleiri áhugamanna um gömul landbúnaðartæki.\r\n\r\n[gallery size=\"large\" ids=\"48655,48656,48657\"]",
  "innerBlocks": []
}
Mælifells Centaur frá 1934 komið fyrir á Landbúnaðarsafni - Skessuhorn