
Sjókvíaeldi. Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti.
Gat kom á sjókví í Arnarfirði
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Matvælastofnun barst tilkynning frá Arnarlax mánudaginn 30. ágúst um gat á nótarpoka einnar sjókvíar Arnarlax við Haganes í Arnarfirði. Gatið uppgötvaðist við neðansjávareftirlit og er viðgerð nú lokið. Samkvæmt upplýsingum Arnarlax var gatið á um tveggja metra dýpi og reyndist vera um það bil 2x2 metrar að stærð. Í þessari tilteknu kví voru um 120.000 laxar með meðalþyngd 0,8 kg. Neðansjávareftirlit var áður framkvæmt mánuði áður og var nótarpokinn þá heill. „Eftirlitsmaður Matvælastofnunar hefur skoðað aðstæður og viðbrögð fyrirtækisins og er atvikið til meðferðar hjá stofnuninni. Arnarlax lagði út net í samráði við Fiskistofu til að kanna hvort strok hafi átt sér stað. Netanna var vitjað síðdegis á mánudag og þriðjudag. Á mánudag komu tveir fiskar í netin sem reyndust að öllum líkindum sjóbirtingar og á þriðjudag veiddist einn lax sem var rúm 2 kg. Fiskarnir verða sendir til Hafrannsóknastofnunar til greiningar.“\r\n\r\nÞá segir í uppfærðri frétt Matvælastofnunar um sama mál að við DNA greiningu hafi verið hægt að tengja strokulaxinn við hæng með kóða E3 en hrogn undan þeim hæng fóru til klak- og seiðastöðvar Arnarlax að Gileyri við Tálknafjörð 10. júlí 2019. Þaðan voru seiðin flutt í fjórum ferðum í sjókvíar við Haganes á tímabilinu 17. september til 4. október 2020. Seiðin voru þá á bilinu 95 til 135g og voru sett í kvíar 5, 11, 12 og 13. „Það er því hægt að fullyrða að laxinn sem veiddist í net við Haganes eftir að gat kom á kví nr. 11 var sannarlega úr þeirri kví. Stærð strokulaxins reyndist vera 51,5 cm og 1.300g,“ segir í frétt Mast um málið.",
"innerBlocks": []
}