Bjartmar Guðlaugsson. Meðfylgjandi myndir tók Kristinn R Kristinsson.

Vel lukkað Heima-Streymi – myndasyrpa

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Heima-Streymi var haldið á Akranesi á laugardagskvöldið í stað Heima-Skaga, sem féll niður um síðustu helgi vegna Covid-19 í bænum. Vakti uppátækið mikla lukku meðal þeirra sem á horfðu. Streymið var haldið í Blikksmiðju Guðmundar að viðstöddum örfáum gestum. Var streymt í beinni útsendingu á Youtube. Það var tónlistarfólkið Andrea Gylfadóttir, Eðvarð Lárusson og Bjartmar Guðlaugsson sem komu fram, en kynnar voru þau Ólafur Páll Gunnarsson og Hlédís Sveinsdóttir.\r\n\r\nSkagafólkið Andrea og Eðvarð voru fyrst á svið. Þau fluttu lög sem Hallbjörg Bjarnadóttir söng í bland við önnur uppáhaldslög Andreu og Edda og gerðu það frábærlega vel. Bjartmar var næstur á svið. María Helena Haraldsdóttir, kona Bjartmars, hefur sterka tengingu við Akranes en mamma hennar er þar fædd og uppalin. Þá er María einnig frænka Guðmundar Hallgrímssonar, stofnanda Blikksmiðju Guðmundar. Bjartmar flutti mörg af sínum þekktustu lögum eins og Negril, Með vottorð í leikfimi og Engisprettufaraldur. Þegar Bjartmar hafði flutt lagið Þannig týnist tíminn var hann klappaður upp. Síðasta lagið sem hann flutti var að sjálfsögðu Sumarliði er fullur við gríðarlega góðar undirtektir þeirra fáu áhorfenda sem viðstaddir voru.\r\n\r\nÞegar þetta er ritað hafa rúmlega 2.200 horft á tónleikana á Youtube. Þeim sem misstu af tónleikunum er bent á að hægt er að sjá þá á slóðinni fyrir neðan fréttina. Umgjörð tónleikanna var hin glæsilegasta en á sviðinu voru til sýnis nokkur verk eftir listamanninn Bjarna Þór Bjarnason af nokkrum af þekktustu tónlistarmönnum sögunnar. Þau Ólafur Páll og Hlédís vildu koma á framfæri þakklæti til allra sem hjálpuðu til við að gera þessa streymistónleika að veruleika.\r\n\r\nHeima-Streymi var skemmtilegt innlegg í Covid faraldurinn og gaman að sjá hvað er hægt að gera á stuttum tíma ef fólk er samtaka. Allt tæknifólkið var Skagafólk, mikið til sami mannskapur og hefur komið að streymi frá Heima með Helga sem sýnt er í Sjónvarpi Símans, t.d. frá Hótel Borg um síðustu verslunarmannahelgi. Þá má geta þess að Óli Palli og Hlédís eru búin að taka upp Skaginn syngur inn jólin. Lögin verða birt á vef Skessuhorns alla morgna frá 1. desember til aðfangadags. Skagamenn og aðrir geta því farið að hlakka til því tónlistin sem var í Skaginn syngur inn jólin 2020 var alveg frábær og Óli og Hlédís lofa því að hún verði ekki síðri í ár.\r\n\r\n<strong>Slóð á tónleikana:</strong> <a href=\"https://www.youtube.com/watch?v=cQHD1hcDibY\">https://www.youtube.com/watch?v=cQHD1hcDibY</a>\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"48693,48692,48691,48690,48689,48688,48687,48686\"]",
  "innerBlocks": []
}
Vel lukkað Heima-Streymi – myndasyrpa - Skessuhorn