Íbúum á Vesturlandi fjölgaði um 320 síðustu tólf mánuði
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Íbúum á Vesturlandi fjölgaði um 320 á tímabilinu 1. nóvemer 2020 til sama dags í ár. Hafa þeir í fyrsta skipti rofið 17 þúsund íbúa múrinn, eru nákvæmlega 17.025. Af einstökum sveitarfélögum fjölgaði hlutfallslega langmest í Helgafellssveit á Snæfellsnesi þar sem íbúafjöldinn hækkaði um 15, eða 21,5%. Þar búa nú 79. Það er jafnframt mesta fjölgun á landsvísu. Íbúum í Eyja- og Miklaholtshreppi fækkaði hins vegar mest allra, eða um 15% og eru þeir nú 102 talsins. Íbúum fjölgaði á Akranesi um 188 á árinu, eða um 2,5% og nálgast nú átta þúsund íbúa markið, eru í dag 7.853. Í Hvalfjarðarsveit fjölgaði um 43 íbúa sem jafngildir 6,7% fjölgun. Þar búa nú 687. Í Borgarbyggð fjölgaði um 96 íbúa sem jafngildir 2,5% fjölgun og eru íbúar nú 3.861. Í Dalabyggð fjölgaði íbúum um 36, eða um 5,8% og eru nú 662 búsettir þar. Í Stykkishólmsbæ fjölgaði um tíu manns, eða um 0,8%, og eru íbúar nú 1207. Fækkun var í Grundarfirði um 37 íbúa sem jafngildir -4,3%, eru nú 883. Loks fækkar lítillega í Snæfellsbæ, eða um 9 íbúa, sem jafngildir hálfu prósenti. Íbúar í Snæfellsbæ eru nú 1679.\r\n\r\nÍbúum fjölgaði í öllum landshlutum á árinu. Hlutfallslega var fjölgunin mest á Suðurlandi eða um 3,2% og á Suðurnesjum um 2,5%. Vesturland er í þriðja sæti með 1,9% fjölgun.",
"innerBlocks": []
}
Íbúum á Vesturlandi fjölgaði um 320 síðustu tólf mánuði - Skessuhorn