Fréttir

true

Íbúum á Vesturlandi fjölgaði um 320 síðustu tólf mánuði

Íbúum á Vesturlandi fjölgaði um 320 á tímabilinu 1. nóvemer 2020 til sama dags í ár. Hafa þeir í fyrsta skipti rofið 17 þúsund íbúa múrinn, eru nákvæmlega 17.025. Af einstökum sveitarfélögum fjölgaði hlutfallslega langmest í Helgafellssveit á Snæfellsnesi þar sem íbúafjöldinn hækkaði um 15, eða 21,5%. Þar búa nú 79. Það er jafnframt mesta…Lesa meira

true

Fyrstu kaupa íbúðir fjórum milljónum dýrari en fyrir ári

Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um fasteignaviðskipti á þriðja ársfjórðungi þessa árs. Seldar voru 1.562 fasteignir til þess hóps sem er að kaupa sína fyrstu fasteign á lífsleiðinni. Að meðaltali greiddu fyrstu kaupendur 45,4 milljónir króna fyrir 96,9 fermetra íbúð, eða sem nemur 469 þúsund krónum á hvern fermetra. „Í dag greiða fyrstu kaupendur að…Lesa meira

true

Umboðsmaður Alþingis telur bæjarstjórn ekki hafa fullnægt rannsóknarskyldu sinni

Umboðsmaður Alþingis birti 12. október síðastliðinn álit í máli sem snertir ráðningu yfirmanns Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar. Umsækjandi um starf slökkviliðsstjóra, sem ekki hlaut starfið, kvartaði til umboðsmanns yfir ráðningu bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar í starfið. Kvörtunin laut einkum að því að hæfasti umsækjandinn hefði ekki verið ráðinn, m.a. vegna þess að rannsókn og samanburði á hæfni…Lesa meira

true

Vel lukkað Heima-Streymi – myndasyrpa

Heima-Streymi var haldið á Akranesi á laugardagskvöldið í stað Heima-Skaga, sem féll niður um síðustu helgi vegna Covid-19 í bænum. Vakti uppátækið mikla lukku meðal þeirra sem á horfðu. Streymið var haldið í Blikksmiðju Guðmundar að viðstöddum örfáum gestum. Var streymt í beinni útsendingu á Youtube. Það var tónlistarfólkið Andrea Gylfadóttir, Eðvarð Lárusson og Bjartmar…Lesa meira

true

Gat kom á sjókví í Arnarfirði

Matvælastofnun barst tilkynning frá Arnarlax mánudaginn 30. ágúst um gat á nótarpoka einnar sjókvíar Arnarlax við Haganes í Arnarfirði. Gatið uppgötvaðist við neðansjávareftirlit og er viðgerð nú lokið. Samkvæmt upplýsingum Arnarlax var gatið á um tveggja metra dýpi og reyndist vera um það bil 2×2 metrar að stærð. Í þessari tilteknu kví voru um 120.000…Lesa meira

true

Enn fjölgar þeim sem eru í einangrun á Akranesi

Lögreglan á Vesturlandi birti nú í hádeginu nýjar tölur um fjölda smitaðra og í sóttkví vegna Covid-19 á Vesturlandi. Frá því í gær hefur fjölgað um 13 í hópi þeirra sem eru í einangrun á Akranesi og Hvalfjarðarsveit. Þeir eru nú 118 talsins. Mjög fækkar í sóttkví á sama tíma, eru nú 217 á svæðinu.…Lesa meira

true

Tjaldsvæði Snæfellsbæjar vel nýtt í sumar

Tjaldsvæði í Snæfellsbæ voru vel nýtt á liðnu sumri. Í heildina dvöldu 10.140 gestir á tveimur tjaldsvæðum í Ólafsvík og á Hellissandi í sumar og fjölgaði um rúm 87,3% frá síðasta sumri, en hafa verður í huga að á síðasta ári voru óvenjufáir ferðamenn á landinu vegna kórónaveirufaraldursins. Frá þessu er greint á heimasíðu sveitarfélagsins.…Lesa meira

true

Bókaormar Brekkubæjarskóla 2021

Spurningakeppnin Bókaormar Brekkubæjarskóla er orðin fastur liður í skólastarfi í 4. – 7. bekk í Brekkubæjarskóla á Akranesi. Í ár var þetta í níunda skiptið sem keppnin fór fram. Lestur yfir sumartímann er jafn mikilvægur og lestur að vetri til og er þetta einn liður í því til að hvetja til sumarlestrar. Það er gert…Lesa meira

true

Má ég líka vera með? – Í tilefni dags gegn einelti

Í dag, mánudaginn 8. nóvember, er Alþjóðlegur dagur gegn einelti. Ingunn Ríkharðsdóttir leikskólastjóri á Garðaseli á Akranesi setti saman smá pistil í tilefni dagsins um það hvernig starfsmenn á leikskólanum vinna með verkefnið Vináttu (Barnaheill). Í pistlinum vísar Ingunn í Vináttuverkefnið. Gefum henni orðið, þar sem hún byrjar á að vitna í Júlíu Rafnsdóttur verkefnastjóra…Lesa meira

true

Brýn þörf fyrir fleiri í bakvarðasveit heilbrigðisstofnana

„Vegna örrar fjölgunar Covid-19 smita með auknu álagi á heilbrigðiskerfið bráðvantar fleira heilbrigðisstarfsfólk á skrá í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar,“ segir í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu. Óskað er eftir liðsinni heilbrigðisstarfsfólks sem er reiðubúið að koma tímabundið til starfa með skömmum fyrirvara, hvort sem er í fullt starf, hlutastarf eða tímavinnu, eftir því sem aðstæður leyfa. Bakvarðasveit heilbrigðisþjónustu…Lesa meira