Fréttir

true

Kosningakæran komin á borð Alþingis

Magnús D. Norðdahl, oddviti Pírata í Norðvesturkjördæmi hefur afhent Alþingi kosningakæru þar sem hann krefst þess að Alþingi úrskurði ógilda kosningu allra framboðslista stjórnmálasamtaka í Norðvesturkjördæmi í kosningunum síðastliðna helgi. Þá krefst hann þess að uppkosning fari fram í kjördæminu við fyrsta tækifæri. „Ég trúi því og treysti að þingmenn skoði þessa kosningakæru af fullri…Lesa meira

true

Flygildi bætist í tækjaflota Skessuhorns

Nýverið festi Skessuhorn kaup á dróna, eða flygildi, til nota við fréttamyndatökur af húsum, höfnum og ýmsu fleiru. Síðan kaupin voru gerð hefur veðrið hins vegar ekki verið sérlega hagstætt til flugs léttbyggðra tækja og þar með myndatöku. Fyrsta prufumyndin er hins vegar þessi, sem tekin var úr fimmtíu metra hæð ofan við skrifstofu Skessuhorns…Lesa meira

true

„Forréttindi að fá að taka þetta að mér“

Stykkishólmsbær hóf fyrir skömmu að bjóða upp á akstursþjónustu fyrir eldri borgara, 67 ára og eldri. Þjónustan er í boði alla fimmtudaga frá kl. 13 til 15 og er gjald fyrir hverja ferð 500 krónur. Hægt er að panta akstur með því að hringja í afgreiðslu Ráðhússins og sér Bogi Thorarensen Bragason um aksturinn. Skessuhorn…Lesa meira

true

Ætlar að halda áfram á sömu línu

Skessuhorn sló í byrjun vikunnar á þráðinn til nýrra þingmanna Norðvesturkjördæmis og spurði út í úrslit kosninganna og hver væru helstu verkefni næsta kjörtímabils. Halla Signý Kristjánsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi segir: „Ég er náttúrulega afskaplega ánægð með úrslit kosninganna. Þetta var það sem við höfðum fengið á tilfinninguna síðustu vikur baráttunnar, að fylgið væri…Lesa meira

true

Undanúrslit í Mjólkurbikarnum á morgun

Spennan er að magnast. Á morgun mætast lið Skagamanna og Keflvíkinga í undanúrslitum Mjólkurbikarsins þetta árið og hefst leikurinn á Akranesvelli klukkan tólf á hádegi. Það er mikið undir í þessum leik. Skagamenn urðu síðast bikarmeistarar árið 2003 þegar þeir lögðu FH að velli 1-0 með marki Garðars Bergmanns Gunnlaugssonar og hafa síðan þá ekki…Lesa meira

true

Ívar Orri valinn dómari ársins af leikmönnum

Leikmenn Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu völdu Skagamanninn Ívar Orra Kristjánsson sem dómara ársins árið 2021. Þetta var tilkynnt á sunnudaginn og fór verðlaunaafhendingin fram í þættinum Pepsi Max stúkan á Stöð 2 Sport sama kvöld. Þetta er í fyrsta skiptið sem Ívar Orri hlýtur þessa viðurkenningu. Blaðamaður Skessuhorns heyrði í Ívari Orra og…Lesa meira

true

Gott útlit með loðnukvóta fyrir næstu vertíð

Hafrannsóknastofnun leggur til, í samræmi við aflareglu strandríkja, að loðnuafli fiskveiðiárið 2021/2022 verði allt að 904.200 tonn. Ráðgjöfin verður svo endurmetin í kjölfar mælinga á stærð veiðistofnsins í byrjun næsta árs. Á síðasta fiskveiðiári veiddust 128.600 tonn af loðnu við Íslandsstrendur og fóru veiðarnar fram í janúar til mars. Þær veiðar voru með minnsta móti…Lesa meira

true

Sundabraut, fyrsta mál á dagskrá

Skessuhorn sló í byrjun vikunnar á þráðinn til nýrra þingmanna Norðvesturkjördæmis og spurði út í úrslit kosninganna og hver væru helstu verkefni næsta kjörtímabils. „Ég er feykiánægður með úrslitin. Ég er ánægður með að þetta eru allt kjördæmakjörnir þingmenn eins og gott er að vera núna, í þessari jöfnunarþingsætahringekju,“ segir Eyjólfur Ármannsson, nýkjörinn þingmaður Flokks…Lesa meira

true

Vill flytja bæjarskrifstofurnar í gamla Landsbankahúsið

Skagamaðurinn og útvarpsmaðurinn góðkunni, Ólafur Páll Gunnarsson, hefur sett inn athyglisverða hugmynd inn á fésbókarsíðuna Ég er íbúi á Akranesi. Þar spyr Ólafur Páll hvort það ætti ekki að taka upp alvöru umræðu um það að bæjarskrifstofur Akraneskaupstaðar verði fluttar í gamla Landsbankahúsið sem er staðsett við Akratorgið. „Það vantar líf í miðbæinn og ef…Lesa meira

true

Samgöngumál, raforkumál og atvinnumál í forgangi

Skessuhorn sló í byrjun vikunnar á þráðinn til nýrra þingmanna Norðvesturkjördæmis og spurði þetta í úrslit kosninganna og hver væru helstu verkefni næsta kjörtímabils. Þegar blaðamaður Skessuhorns náði tali af Haraldi Benediktssyni spurði hann Harald fyrst að því hvort hann væri ánægður með úrslitin? „Ég er ánægður með aðalatriðin en ég er ekki ánægður með…Lesa meira