Vill flytja bæjarskrifstofurnar í gamla Landsbankahúsið

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Skagamaðurinn og útvarpsmaðurinn góðkunni, Ólafur Páll Gunnarsson, hefur sett inn athyglisverða hugmynd inn á fésbókarsíðuna Ég er íbúi á Akranesi. Þar spyr Ólafur Páll hvort það ætti ekki að taka upp alvöru umræðu um það að bæjarskrifstofur Akraneskaupstaðar verði fluttar í gamla Landsbankahúsið sem er staðsett við Akratorgið. „Það vantar líf í miðbæinn og ef bæjarskrifstofurnar myndu flytja í gamla Landsbankahúsið yrði það heldur betur lyftistöng fyrir hjarta bæjarins.“ Þá segir Ólafur Páll einnig að byggingin sé komin til ára sinna og komið að viðhaldi á einu og öðru en hann sjái það ekki sem vandamál: „Það er flest hægt að laga ef viljinn er fyrir hendi. Ég veit að það er einhver starfsemi í húsinu í dag, sem er gott, en þetta hús myndi sóma sér vel sem ráðhús bæjarins. Ráðhús í hjarta Akraness er það eina rétta,“ segir Óli Palli að lokum og bendir á það sé nóg af bílastæðum fyrir aftan húsið.",
  "innerBlocks": []
}
Vill flytja bæjarskrifstofurnar í gamla Landsbankahúsið - Skessuhorn