{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Skessuhorn sló í byrjun vikunnar á þráðinn til nýrra þingmanna Norðvesturkjördæmis og spurði út í úrslit kosninganna og hver væru helstu verkefni næsta kjörtímabils.\r\n\r\n„Ég er feykiánægður með úrslitin. Ég er ánægður með að þetta eru allt kjördæmakjörnir þingmenn eins og gott er að vera núna, í þessari jöfnunarþingsætahringekju,“ segir Eyjólfur Ármannsson, nýkjörinn þingmaður Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi. „Þetta fór fram úr okkar björtustu vonum. Við stefndum ótrauð á 1500 atkvæði og þetta var aðeins betra en það.“\r\n\r\nSpurður um hvað verði það fyrsta sem hann beiti sér fyrir á Alþingi svarar Eyjólfur: „Það er baráttan gegn fátækt, afnám tekjuskerðingar og að tryggja lágmarksframfærslu, 350 þúsund. Það er kjarnamálefni. Varðandi kjördæmið og náttúrulega landið í heild, þá eru það frjálsar handfæraveiðar, breytingar á kvótakerfinu og það að frjálsar handfæraveiðar ógna ekki fiskistofnum. Kerfið þarf að halda utan um þær veiðiaðferðir sem ógna fiskistofnum.“ Eyjólfur heldur áfram: „Svo eftir að hafa keyrt um umdæmið eru það samgöngur að sjálfsögðu.“\r\n\r\nÞá segist Eyjólfur leggja mikla áherslu á Sundabraut. „Sundabraut, alveg pottþétt. Fyrsta mál á dagskrá. Nú þarf bara að byrja að framkvæma, Spölur 2, eða hvernig sem það verður gert. Það er mikið hagsmunamál fyrir bæði kjördæmið og landsbyggðina.“\r\n\r\nEyjólfur nefnir einnig Breiðafjarðarferjuna Baldur, að það þurfi nýjan Baldur. „Það er eins og að fara aftur í tímann að nota hann. Samgöngumálin eru mikið forgangsmál,“ segir Eyjólfur aðspurður um sínar helstu áherslur. „Ég keyrði Skógarströnd tvisvar og svo keyrði ég Laxárdalsheiði. Það kom mér á óvart hversu margir ferðamenn voru á Skógarströnd. Ég tel að það þurfi að bæta þessar tengingar innan kjördæmisins, sérstaklega þessir tvo vegi.“",
"innerBlocks": []
}