Fréttir

true

Viðbragðsaðilar komu saman

Í dag er alþjóðlegur minningardagur fórnarlamba umferðarslysa. Í ljósi tíðra slysa þar sem ungt fólk hefur beðið bana er sjónum beint að yngstu ökumönnunum að þessu sinni. Á Vesturlandi er víða komið saman. Á Akranesi komu fulltrúar allra viðbragðaðila saman við björgunarmiðstöðina við Kalmansvelli klukkan 14 og voru meðfylgjandi myndir teknar þar. Eftir myndatöku var…Lesa meira

true

Stórsigur Skallagríms á Hamri í Borgarnesi

Skallagrímur vann sannfærandi sigur á Hamri, 105:83, í körfunni á föstudaginn. Borgnesingar tóku strax öll völd á heimavelli sínum og lögðu grunninn að sigrinum með frábærum fyrri hálfleik. Heimamenn sýndu mikinn sóknarkraft og leiddu með 31 stigi í leikhléi, 63:32, fyrir framan 178 áhorfendur. Skallagrímsmenn byrjuðu af miklum krafti og unnu fyrsta leikhluta 31:16. Þeir…Lesa meira

true

Andlát – Guðjón Þórðarson

Einn sigursælasti leikmaður og þjálfari íslenskrar knattspyrnu, Guðjón Þórðarson á Akranesi er látinn, 71 árs að aldri. Undanfarin ár hefur Guðjón glímt við erfið veikindi. Í viðtal við Ríkisútvarpið í september opnaði hann sig um baráttuna við Parkinson-sjúkdóminn. Þar sagðist hann vera í „bölvuðu basli með heilsuna“ en vonaðist til þess að ná heilsunni á…Lesa meira

true

Alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa

Í dag er alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa. Í ár er sjónum beint að ungum vegfarendum í umferðinni og hraðakstri ungmenna. Að því tilefni ætla viðbragðsaðilar á Vesturlandi að hittast og halda minningarstundir, sbr. meðfylgjandi samantekt Lögreglunnar á Vesturlandi: Borgarnes: Klukkan 14:00 ætla viðbragðsaðilar að hittast við Borgarneskirkju þar sem séra Úrsúla Árnadóttir ætlar að…Lesa meira

true

Þorsteinsmóti lauk með sigri sunnanmanna

Þorsteinsmótið í bridds var spilað í Logalandi í gær. Mótið er haldið til minningar um Þorstein Pétursson kennara og briddsspilara frá Hömrum í Reykholtsdal sem um árabil beitti sér fyrir framgangi briddsíþróttarinnar í héraði. Þorsteinsmót er að venju stærsta briddsmót í landshlutanum og eitt af stærri mótum sem haldin eru á landsbyggðinni. Þátttaka var góð.…Lesa meira

true

Bryggjupollar slitnuðu í óveðri

Djúp lægð á föstudag orsakaði óveður um norðan- og austanvert landið á föstudaginn. Í ofankomu og blindhríð þurftu björgunarsveitir og aðrir viðbragðsaðilar að koma að ýmsum verkefnum norðan heiða. Í Húnavatnssýslu þurfti við bæ einn að grafa á annað hundruð kindur úr fönn, bílar sátu fastir á heiðum allt frá Bröttubrekku í vestur og austur…Lesa meira

true

Einfaldara regluverk á að flýta húsnæðisuppbyggingu og lækka byggingakostnað

Unnið er að umfangsmiklum breytingum á regluverki skipulags- og byggingarmála með það að markmiði að stytta afgreiðslutíma, draga úr kostnaði og greiða fyrir húsnæðisuppbyggingu. Breytingarnar ná meðal annars til skipulagslaga, byggingarreglugerðar og byggingareftirlits. Áhersla er lögð á einfaldari stjórnsýslu, skýrari ábyrgð og aukna notkun stafrænna lausna, án þess að slaka á kröfum um gæði og…Lesa meira

true

Öflugur fyrri hálfleikur lagði grunn að sigri ÍA á Fjölni

ÍA vann góðan sigur á Fjölni, 104:93, í körfunni í leik sem spilaður var í AvAir-höllinni á Akranesi í gær. Skagamenn lögðu grunninn að sigrinum með öflugum fyrri hálfleik þar sem þeir skoruðu 60 stig gegn 45 stigum gestanna. Fjölnismenn sóttu í sig veðrið eftir hlé en heimamenn héldu forystunni og fögnuðu að lokum ellefu…Lesa meira

true

Lestuðu fiskimjöli á Akranesi

Síðastliðinn þriðjudag lagðist flutningaskipið Wilson Bilbao að bryggju á Akranesi. Í lestar skipsins var dælt fiskimjöli úr tönkum Brims. Skipið er skráð á Bahamaeyjum, en flutningsgeta þess er ríflega 2400 tonn. Meðfylgjandi mynd tók Guðmundur St. Valdimarsson í rjómablíðu í Akraneshöfn á þriðjudaginn.Lesa meira

true

Blóðsykurmæling Lions í Grundarfirði

Lionsklúbbur Grundarfjarðar bauð bæjarbúum upp á ókeypis blóðsykurmælingu fimmtudaginn 12. nóvember. Það voru sjúkraflutningamennirnir Tómas Freyr Kristjánsson og Þorkell Máni Þorkelsson sem sáu um mælinguna og Viktoría Þöll Þorkelsdóttir sá um að enginn fór óplástraður út. Góð mæting var í mælinguna, sem var í anddyri Kjörbúðarinnar í Grundarfirði, enda afskaplega mikilvægt að hafa blóðsykurinn í…Lesa meira