Lestuðu fiskimjöli á Akranesi

Síðastliðinn þriðjudag lagðist flutningaskipið Wilson Bilbao að bryggju á Akranesi. Í lestar skipsins var dælt fiskimjöli úr tönkum Brims. Skipið er skráð á Bahamaeyjum, en flutningsgeta þess er ríflega 2400 tonn. Meðfylgjandi mynd tók Guðmundur St. Valdimarsson í rjómablíðu í Akraneshöfn á þriðjudaginn.