Öflugur fyrri hálfleikur lagði grunn að sigri ÍA á Fjölni

ÍA vann góðan sigur á Fjölni, 104:93, í körfunni í leik sem spilaður var í AvAir-höllinni á Akranesi í gær. Skagamenn lögðu grunninn að sigrinum með öflugum fyrri hálfleik þar sem þeir skoruðu 60 stig gegn 45 stigum gestanna. Fjölnismenn sóttu í sig veðrið eftir hlé en heimamenn héldu forystunni og fögnuðu að lokum ellefu stiga sigri fyrir framan 179 áhorfendur.